Vélmennið Tommy skýtur rauðklætt fólk Sara McMahon skrifar 8. mars 2013 06:00
Elías Marel Þorsteinsson, Axel Bender og Ívar Kristinsson, nemendur við HR, hönnuðu vélmennið Tommy sem þeir sýna á Háskóladegi HR á morgun. "Þetta var mjög krefjandi en skemmtilegt verkefni. Vinnan gekk nokkuð áfallalaust fyrir sig þó að smíðarnar hafi stundum gengið brösulega. Við gerðum þetta á mjög stuttum tíma og það var mikið unnið á kvöldin," segir Elías Marel Þorsteinsson, nemandi í hátækniverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann, Axel Bender og Ívar Kristinsson hönnuðu og smíðuðu vélmenni sem skýtur frauðkúlum í hvern þann sem klæðist rauðu fyrir áfangann Mechatronics 1. Elías segir vélmennið fyrst og fremst hannað með það markmið að sýna fram á hvernig nýta megi tæknina á ýmsa vegu en þó mætti nota það við eftirlit, svo eitthvað sé nefnt. Á vefsíðunni Youtube má finna kynningarmyndband sem þremenningarnir gerðu og er ætlað að kynna vélmennið. Í myndbandinu sést vélmennið, sem strákarnir hafa nefnt Tommy, fylgja Elíasi eftir og skjóta á hann frauðkúlum. "Þetta var alls ekki vont enda er byssan keypt í leikfangaverslun og ekki til þess að meiða," segir Elías og hlær. Hópurinn verður viðstaddur Háskóladag HR, sem fer fram í skólanum á morgun. Þar munu þeir kynna Tommy fyrir gestum og gangandi á milli klukkan 12 og 16. "Við verðum í rauðum bolum og hlaupum þarna um eins og vitleysingar. Svo ætlum við að leyfa fólki að prófa að handstýra vélmenninu og skjóta á okkur og alla hina sem mæta í rauðu," segir hann að lokum.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira