Lífið

Frestað um fimm mánuði

Þriðju Hobbitamyndinni hefur verið seinkað. Hún kemur út 17. desember 2014, fimm mánuðum síðar en áætlað var. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framleiðandanum Warner Bros.

The Hobbit: There and Back Again átti að koma í bíó í júlí 2014. Hún mun fylgja í kjölfar The Hobbit: An Unexpected Journey, sem kom út í desember síðastliðnum, og The Hobbit: The Desaulation of Smaug, sem kemur út í desember næstkomandi. Fyrsta Hobbitamyndin varð mjög vinsæl og seldust miðar á hana á heimsvísu fyrir um 700 milljónir punda, eða um 130 milljarða króna. Hér fyrir ofan má sjá kynningarmyndband þar sem fylgst er með síðustu dögum framleiðslu myndarinnar í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.