Lífið

Ingólfur á allt gott skilið

Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Skálmaldar. Mynd/Stefán
Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Skálmaldar. Mynd/Stefán
„Ég kynnist honum þegar Skálmöld spilaði á G! festival árið 2011 og hann var að mynda. Hann er líka mikill víkingur og hefur lánað okkur vopn og annað í myndatökur. Hann hefur líka brugðið sér í hlutverk fyrirsætu og er á mörgum „prómó“ myndum fyrir Skálmöld. Hann óð til dæmis út í Rauðavatn í ágúst þegar við vorum að mynda fyrir nýju plötuna. Hann hikaði ekki við að vaða út í vatnið og fara á bólakaf fyrir eina mynd. Við höfum því átt góða tíma saman og við skuldum honum,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Skálmaldar, um ljósmyndarann Ingólf Júlíusson. Meðlimir Skálmaldar gátu ekki komið fram á tónleikum sem haldnir voru á fimmtudag til styrktar Ingólfi og baráttu hans gegn hvítblæði. Þeir brugðu þess í stað á það ráð að hanna sérstaka boli til styrktar vini sínum og fjölskyldu hans. Mynd af Ingólfi í fullum víkingaklæðum og Skálmaldar-lógóið prýða umrædda stuttermaboli sem fást á vefsíðunni www.blekholt.is. Allur ágóði af sölu þeirra rennur óskiptur til Ingólfs. „Við vonum að sjálfsögðu að sem flestir sjái sér fært að styrkja Ingólf með hvaða hætti sem er, ef það er með bolakaupum þá er það bara frábært. Hann á allt gott skilið þessi drengur og við erum virkilega ánægðir með að geta aðstoðað hann á þennan hátt því við vorum mjög leiðir yfir að missa af styrktartónleikunum.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.