Lífið

Gæti þurft að greiða 23 milljónum bætur

Mörg börn virðast hafa keypt app-vörur í gegnum símann án þess að fá til þess leyfi hjá foreldrum sínum.
Mörg börn virðast hafa keypt app-vörur í gegnum símann án þess að fá til þess leyfi hjá foreldrum sínum.
Apple-fyrirtækið gæti þurft að borga meira en 23 milljónum áskrifenda iTunes skaðabætur vegna barna sem hafa keypt öpp eða hluti tengda öppum án þess að fá til þess leyfi frá foreldrum sínum. Frá þessu er greint á vef BBC.

Málið má rekja til lögsóknar frá því í apríl 2011. Þá krafðist maður að nafni Garen Meguerian skaðabóta vegna þess að níu ára gömul dóttir hans hafði, að hans sögn, keypt app-vörur fyrir um það bil 25.000 íslenskar krónur án hans vitneskju. Fleiri lögsóknir af svipuðum meiði fylgdu í kjölfarið en á þeim tíma gátu notendur slegið inn leyniorð og keypt app-vörur næstu fimmtán mínúturnar án þess að slá leyniorðið inn aftur. Síðan þá hefur stillingunum verið breytt og nú þarf að slá inn leyniorð fyrir hver kaup sem gerð eru.

Málið verður tekið fyrir í réttarsal í Kaliforníu á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.