Lífið

Ölvísur ekki bara sport fyrir gamla karla

Tinna Rós Steinsdóttir skrifar
"Hingað til hefur það verið sport fyrir gamla karla að yrkja drykkjuvísur og það hefur varla verið gert af neinu viti síðustu 100 árin eða svo," segir Birkir Blær Ingólfsson, ölvísuskáld og meðlimur húsbands Stúdentakjallarans.

Á morgun eru liðin 24 ár frá því að bjórbanninu var aflétt hér á Íslandi og hefur Stúdentakjallarinn efnt til ölvísukeppni í tilefni þess þar sem allir geta sent vísu til leiks. "Mér finnst að ef maður ætli á annað borð að yrkja ölvísu eigi hún að vera hrá, gamaldags og dýrt kveðin, auk þess sem hún verður auðvitað að vera rammíslensk," segir Birkir Blær en skilafrestur rennur út í hádeginu á morgun. Á laugardagskvöldið verður svo haldinn bjórfagnaður á Kjallaranum þar sem nokkrar vísur verða fluttar á listrænan hátt af nemum í LHÍ og höfundur bestu vísunnar fær viðeigandi verðlaun. Nokkrar vísur verða í framhaldinu valdar úr og hengdar upp á vegg í Stúdentakjallaranum. "Þá getur fólk komið og bent vinunum á afrakstur sköpunargleði sinnar," segir Birkir.

Birkir Blær og félagar hans í húsbandi Stúdentakjallarans skelltu sjálfir í eina vísu og nefndu hana Öl og gleði eru bræður. "Hvorki öl né gleði er karlkyns en samt tölum við um bræður. Okkur finnst það falleg og nýmóðins hugsun að allir geti verið bræður, að minnsta kosti á djamminu," segir Birkir.

Vísan hefur verið tekin upp og verður spiluð á hátíðinni á laugardaginn. "Falskur karlakór er lykillinn í flutningnum svo okkur fannst of flókið að taka hana í beinni á sviðinu," segir Birkir. Á hlekknum hér að ofan má nálgast umrædda drykkjuvísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.