Lífið

Steypiboð Shakiru til styrktar UNICEF

Þegar hafa milljónir dollara verið gefnar til UNICEF í nafni Milans Piqué Mebarak, nýfædds sonar Shakiru og Gerards Piqué. Þessi mynd var sett á síðu UNICEF í tengslum við söfnunina, en hún er sú fyrsta og eina sem birst hefur af honum hingað til.
Þegar hafa milljónir dollara verið gefnar til UNICEF í nafni Milans Piqué Mebarak, nýfædds sonar Shakiru og Gerards Piqué. Þessi mynd var sett á síðu UNICEF í tengslum við söfnunina, en hún er sú fyrsta og eina sem birst hefur af honum hingað til. Nordicphotos/Getty
Eins og flestir vita eignuðust söngkonan Shakira og fótboltastjarnan Gerard Piqué sitt fyrsta barn, soninn Milan Piqué Mebarak, þann 22. janúar síðastliðinn. Að bandarískum sið ákvað parið að halda steypiboð (e. baby shower) fyrir soninn en breytti þó örlítið út af vananum.

Venjulega mætir fólk í slík boð með gjafir barninu til handa. Shakira og Piqué ákváðu þó að nýta tækifærið til að aðstoða þá sem minna mega sín og hvöttu aðdáendur sína og vini til að kaupa svokallaðar Sannar gjafir UNICEF, sem eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn. Í kjölfarið var fyrsta myndin af drengnum birt á heimasíðu UNICEF, en Shakira er velgjörðarsendiherra hjá samtökunum. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum og nú þegar hafa milljónir dala verið gefnar í nafni Milans litla. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.