Lífið

Hjónabandið á enda runnið

Josh Brolin og Diane Lane eru hætt saman.
Josh Brolin og Diane Lane eru hætt saman. nordicphotos/getty
Hollywood-stjörnurnar Josh Brolin og Diane Lane hafa ákveðið að enda hjónaband sitt. Brolin og Lane gengu upp að altarinu árið 2004 en hafa ekkert hist síðan seint á síðasta ári. Blaðafulltrúi hjónanna staðfesti tíðindin við UsMagazine.com.

Þau voru síðust mynduð saman í Los Angeles í desember á frumsýningu The Guilt Trip með stjúpmóður Brolins, Barbra Streisand, í aðalhlutverki. Lane hefur áður gengið í gegnum hjónaskilnað þegar hún hætti með Christopher Lambert árið 1994. Sama ár hætti Brolin með barnsmóður sinni Alice Adair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.