Bleyjukökur vinsælar í steypiboðunum Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 21. febrúar 2013 15:15 Karen Kjartansdóttur var komið á óvart með steypiboði um síðustu helgi. Mynd/VAlli
Svokölluð baby shower, eða steypiboð á góðri íslensku, hafa verið að færast í aukana hérlendis á undanförnum árum. Um er að ræða bandaríska hefð þar sem vinkonur verðandi móður halda óvænt boð fyrir hana áður en barnið kemur í heiminn. Bleyjukökur eru vinsælasta gjöfin í slíkum veislum vestanhafs, en þær eru einnig fáanlegar hérlendis. "Það er hægt að búa til bleyjukökur úr hvernig bleyjum sem er. Oftast nota ég annaðhvort Libero eða Pampers ef kaupandinn er ekki með neinar sérstakar óskir. Það er líka hægt að nota allar stærðir af bleyjum, enda eru kökurnar mikið gefnar í gjafir eftir að barnið er fætt," segir Bergþóra Björg, eigandi fyrirtækisins Gjafakörfunnar. Bleyjukökurnar eru í flestum tilfellum búnar til úr pappableyjum, en þær er einnig hægt að búa til úr öðru, til dæmis taubleyjum eða þvottapokum. Bleyjunum er þá annaðhvort rúllað upp og raðað saman eða raðað í hring og bundið um þær með borða. Bergþóra setur yfirleitt bangsa á toppinn á sínum kökum. Stundum er miðjan tekin úr þeim til að koma fyrir gjöfum þar. "Ég reyni líka að nota gjafirnar til að skreyta kökurnar enn frekar. Einu sinni vildi kaupandinn til dæmis láta hálsmen fylgja með svo ég setti það utan um hálsinn á bangsanum," segir hún. Í Bandaríkjunum er algengt að skreyta kökurnar enn frekar með smáhlutum sem barnið þarfnast, eins og snuðum. "Þetta er svo skemmtileg, falleg og sniðug gjöf og það er hægt að treysta því að hún komi til með að nýtast barninu," segir Bergþóra Björg. Bergþóra Björg hefur alltaf verið mikil föndurkona. Hún er að læra til blómaskreytis í Garðyrkjuskólanum í Hveragerði og dreymir um að Gjafakarfan verði í framtíðinni blóma- og gjafavöruverslun. Hún hefur alltaf verið mikið fyrir bandarískar hefðir og árið 2009 byrjaði hún að leita sér upplýsinga og prófa sig áfram í gerð bleyjukaka eftir að hafa séð þeim bregða fyrir í ófáum bandarískum bíómyndum. "Þetta er það yndislegasta sem ég geri," segir hún. Hún segist hafa tekið eftir því að það séu helst stelpur í kringum tvítugsaldurinn sem kaupi kökurnar til að gefa í svokölluð steypiboð (e. baby shower), svo hún gerir ráð fyrir að það séu helst yngri stelpurnar sem séu farnar að taka upp þá hefð. Kökurnar eru þó vinsælar í skírnargjafir eða sængurgjafir líka og kaupendurnir því á öllum aldri og alls staðar að. "Ég sendi hvert á land sem er og hef meira að segja tvisvar sinnum sent kökur erlendis, til Bretlands og Noregs," segir hún. Hélt ég væri að fara í afmæliKaren Kjartansdóttir er 24 ára gömul og á von á sínu fyrsta barni þann 28. apríl næstkomandi með kærastanum sínum, Jun De Luna. Vinkonur Karenar komu henni heldur betur á óvart um síðustu helgi þegar þær slógu upp steypiboði fyrir hana. "Stelpurnar skipulögðu þetta þannig að þær létu mig halda að ég væri á leiðinni í afmæli til einnar í hópnum. Svo þegar ég kom inn var búið að skreyta alla íbúðina með barnadóti eins og samfellum og barnaskóm. Ég skildi í fyrstu ekkert hvað var í gangi," segir Karen. Hún er önnur vinkonan í hópnum til að eignast barn en þetta var þó í fyrsta skipti sem svona boð er haldið. "Við ætluðum að halda steypiboð fyrir vinkonu okkar þegar hún var ólétt en það klúðraðist því hún átti fyrir tímann svo við náðum því ekki," rifjar hún upp. Hún segir þær vinkonurnar allar hafa skemmt sér mjög vel í boðinu. Það hafi byrjað á því að allar fengu stelpurnar sér fordrykk, sem var að sjálfsögðu óáfengur. Þær gæddu sér svo á girnilegum kökum og kræsingum og fóru í leiki. "Stelpurnar voru til dæmis búnar að smyrja súkkulaði í þrjár bleyjur og ég átti að þefa af þeim og giska á hvaða súkkulaði væri í hvaða bleyju. Ég fékk svo pakka fyrir hvert rétt svar og þar sem ég náði þeim öllum rétt fékk ég þrjár rosa flottar gjafir. Ætli þær séu þá ekki orðnar stikkfrí að gefa mér sængurgjafir þegar barnið kemur," segir Karen og hlær. Hvað er steypiboð?Bleyjukökurnar geta verið allt frá einni hæð og upp úr, en þriggja hæða kökurnar eru vinsælar. Mynd/Bergþóra BjörgSteypiboð eru boð af bandarískri hefð sem vinkonur eða skyldkonur verðandi móður halda henni stuttu áður en hún eignast barn. Yfirleitt er verðandi móðirin lokkuð í boðið á fölskum forsendum og það látið koma henni á óvart. Upphaflega voru boðin aðeins haldin þegar konur áttu von á sínu fyrsta barni en á seinni árum hefur það breyst og þau nú yfirleitt haldin við hverja óléttu. Það er þó vaninn að einungis konum sé boðið að koma og þeim sem þegar eiga börn er gert að veita þeirri óléttu heilræði varðandi móðurhlutverkið. Allir gestir færa verðandi móðurinni, eða ófæddu barninu, einnig litla gjöf. Vaninn er að þær gjafir séu hlutir sem barnið þarfnast eftir að það fæðist, svo sem bleyjur, teppi, pelar og föt. Hefðina má finna víðs vegar um heiminn þó hún sé mismunandi eftir heimshlutum. Í Kína er boðið til að mynda yfirleitt haldið um mánuði eftir að barnið fæðist. Sums staðar tíðkast það líka að föðurnum séu haldin sérstök boð en þau eru yfirleitt af öðrum toga. Í Bretlandi er föðurnum til að mynda haldið sérstakt boð rétt eftir fæðingu barnsins þar sem félagarnir fara með hann á barinn og drekka nýfædda barninu skál.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Lífið samstarf Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira