Hálfgildings eignaupptaka á húsi listamannsins Jakob Bjarnar skrifar 17. október 2013 13:00 Daði Guðbjörnsson, listamaður, er ósáttur við fyrirhugaða byggingu rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
Íbúasamtök Vesturbæjar mótmæla harðlega fyrirhugaðri byggingu rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar við Mýrargötu. Ef byggingin rís verður hús Daða Guðbjörnssonar listamanns sem garðskúr við kirkjuna og er hann ekki sáttur við það. Íbúasamtök Vesturbæjar létu gera mynd sem á að sýna rétt hlutföll byggingar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar við Mýrargötu. Samtökin eru ókát með bygginguna og hafa skorað á skipulagsráð Reykjavíkur að finna aðra lóð en á Mýrargötu fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Ef myndin er skoðuð má sjá að stór og sérstæð byggingin mun rísa við hlið húss Daða Guðbjörnssonar listamanns, sem stendur við Brunnstíg 5. Listamanninum finnst eitt og annað sem megi athuga í tengslum við kirkjuna sem slíka, til dæmis framgöngu hennar í máli Pussy Riot. Og áfram má telja. „Þeir eru bara í Gamla testamentinu.“ Daða finnst byggin ekki eiga heima þarna á hafnarsvæðinu, sem er sögulega merkilegt. Þarna voru til dæmis rifnar merkir skúrar, sennilega þeir merkilegustu á Reykjavíkursvæðinu. Það er ekki eitt, það er allt að mati Daða sem hefur búið þarna ásamt fjölskyldu sinni í rúman áratug. Hann segist svo sem ekkert á förum þó byggingin rísi og hús hans verið við það sem kofi meðhjálparans, það sé svo seigt í sér og hann öllu vanur. Sumir borgarbúar eru jafnari en aðrir og eitt og annað hafa íbúar svæðisins mátt þola þegar skipulagsslys eru annars vegar. Daði segir reyndar samningaviðræður standa yfir um að kirkjunni verði fundinn annar staður. Nokkrir einstaklingar mótmæla einnig kirkjubyggingunni, segja hana meðal annars of stóra og óttast bílastæðaskort. En, þeir eru einnig margir sem lýsa yfir stuðningi sínum við bygginguna, segja hana fagra en Daði er því ekki sammála. „Mér finnst þetta forljót bygging. Og væri betur komin annars staðar. Ég sé fyrir mér bygginguna í einhverjum fallegum trjálundi. Það verður „spreyjað“ á hana þarna eins og aðrar byggingar. Ég hef séð fallegar trékirkjur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar en þessi er ekki falleg. En, hvað veit ég? Ég er bara listamaður.“
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira