Innlent

Jafnréttisstofa hissa á Playboy partýi Sjallans

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
„Sjóðheitar drottningar“ taka á móti gestum í Playboy partýi Sjallans um helgina.
„Sjóðheitar drottningar“ taka á móti gestum í Playboy partýi Sjallans um helgina.
„Vegna mikilla eftirspurna höfum við loksins ákveðið að halda hið sjóðandi heita Playboy Partý í Sjallanum þar sem GULLFALLEGAR, SJÓÐANDI heitar Playboy kanínur taka á móti gestum,“ segir í auglýsingu frá skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri.

Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu undrast staðurinn hyggist halda slíkt partý, aðeins mánuði eftir að hætt var við svokallað „Dirty Night“.

Í viðtali við akureyrivikublad.is sagði einn af forsvarsmönnum Sjallans af því til efni að þeir hefðu misskilið hvernig samkoman „Dirty Night“ ætti að vera og um leið og þeir sáu hvað þetta var þá hefðu þeir ákveðið að bakka út. „Við sjáum að fólk er mjög á móti svona viðburðum og við höfum enga þörf fyrir að berjast á móti jafnrétti svo þegar við sáum hvert þetta var að stefna var það ekki spurning í okkar huga að hætta við þetta,“ sagði forsvarsmaðurinn.

Nú aðeins mánuði síðar heldur staðurinn svokallað Playboy partý en í auglýsingunni kemur meðal annars fram að  stelpur sem mæta í Playboy búning eða leðri fái glaðning en strákar sem mæta í slopp eða með slaufu fái glaðning. Þá verður „Playmate“ gella kvöldsins valin sem og „Playmate“ gæji kvöldsins. Einnig munu "sjóðheitar drottningar" taka á móti gestum.

Ingibjörg segir Jafnréttisstofu hafa borist ábending um Playboy partýið í dag, en hafi ekki tekið málið til formlegrar skoðunar ennþá. Hún undrast þessa ákvörðun hjá forsvarsmönnum Sjallans, sem hafi fengið hrós frá Akureyrarbæ fyrir ári síðan fyrir að hætta við enn eitt vafasama kvöldið. Hún segist í sannleika sagt vera orðin nokkuð þreytt á þessu, ekki sé annað að sjá á auglýsingunni, en að um sömu hlutgervingu kvenna sé að ræða og vísar þá til nakinnar konu í mynd á auglýsingunni, sem og tvíræðinni atburða sem þar eru auglýstir. Sjallinn hafi brugðist snarlega við fyrir mánuði síðan en nú sé greinilega annað hljóð komið í skrokkinn.

Hér má sjá facebook-auglýsingu viðburðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×