Vinsæl vöðvabúnt 9. febrúar 2013 12:00 Vvel fór á með Stallone og Schwarzenegger á frumsýningu The Expendables 2 í fyrra. nordicphotos/getty
Vöðvabúntin og testósteróntröllin Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone virðast eiga níu líf í kvikmyndabransanum. Þrátt fyrir að vera komnir vel á sjötugsaldurinn leika þeir báðir í nýjum hasarmyndum sem eru komnar í bíó hérlendis. Schwarzenegger í The Last Stand og Stallone í Bullet to the Head. Hér áður fyrr voru þeir tvær af heitustu hasarmyndhetjum heimsins eftir að hafa túlkað Rocky, Rambó, Tortímandann og villimanninn Conan eins og þeim einum er lagið. Núna, rúmum fjörutíu árum eftir að þeir hófu feril sinn, eru þeir enn að og virðast ekkert ætla að slaka á í bráð. Báðir gengu þeir í gegnum þurrkatímabil. Hjá Stallone stóð það yfir í rúman áratug, eða til ársins 2006 þegar hann ákvað að draga upp boxhanskana að nýju í sjöttu myndinni um Rocky. Síðan þá hefur honum gengið allt í haginn. Endurkoma Rambo 2008 gekk vel og The Expendables-myndirnar hans tvær hafa báðar hitt í mark. Sú þriðja er einmitt í undirbúningi en Schwarzenegger lék einmitt nokkuð stórt hlutverk í henni. Schwarzenegger átti erfið ár frá 1997 þegar hann lék í hinni misheppnuðu Batman & Robin þangað til árið 2003 er hann lék Tortímandann í þriðja sinn við góðar undirtektir. Eftir að hafa tekið sér hlé frá kvikmyndaleik til að sinna starfi ríkisstjóra Kaliforníu sneri Schwarzenegger aftur. Að sjálfsögðu eru gamlir kunningjar handan við hornið hjá honum því The Legend of Conan á að koma út á næsta ári, auk þess sem hann hefur verið orðaður við hlutverk í Terminator 5.
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fleiri fréttir Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Sjá meira