Eftir höfðinu dansa limirnir Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. september 2013 08:00 Lars Lagerbäck er á hárréttri leið með íslenska landsliðið. fréttablaðið/pjetur
Eftir mörg ár af lélegum úrslitum og enn leiðinlegri fótbolta er aftur orðið gaman að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu. Það er farið að spila almennilegan fótbolta og er þess utan að ná góðum úrslitum. Landinn virtist að mestu orðinn þreyttur á liðinu en viðhorfsbreytingin sést kannski best í því að nánast er uppselt, er þetta er ritað, á landsleik gegn Kýpur mánuði fyrir leik. Ísland náði frábærum úrslitum í síðustu tveimur leikjum sínum og hefur örlögin í sínum höndum. Umspil um laust sæti á HM er raunverulegur möguleiki. Ísland er komið í 54. sæti FIFA-listans og stefnir enn hærra. Að fikra sig upp þennan lista skiptir gríðarlega miklu máli því eftir honum er farið er raðað er niður í styrkleikaflokka fyrir stórmót. Síðustu stökk munu gera það að verkum að Ísland færist upp um styrkleikaflokk fyrir næsta stórmót, sem er EM. Á það mót stefna allir leynt og ljóst enda verður þátttökuþjóðum fjölgað á næsta móti. Styrkleikalisti FIFA er stigalisti sem tekur mið af úrslitum landsliðs síðustu fjögur ár. Nýjustu úrslit vega þó meira en gömlu. Þar sem Lars tók við í janúar árið 2012 verður staða Íslands eingöngu undir hans stjórn ekki ljós fyrr en í janúar árið 2016. Slæmt gengi liðsins undir stjórn Ólafs Jóhannessonar gerði það að verkum að liðið féll alla leið niður í 131. sæti fljótlega eftir að Svíinn tók við. Síðan hefur leiðin legið upp á við og ef að líkum lætur á landslið Lagerbäck eftir að ógna meti landsliðs Ásgeirs Elíassonar, sem fór upp í 37. sæti listans. Landsliðið var á árum áður gagnrýnt fyrir margt, þar á meðal áhugaleysi, agaleysi og lélegan undirbúning. Þó svo að leikmennirnir sem við eigum í dag séu betri en oft áður er ekki sjálfgefið að liðið nái þeim árangri sem það er að ná núna. Til þess að slíkur árangur náist þarf margt annað en geta leikmanna að vera í lagi. Stjórnunin er þar líklega efst á blaði því eftir höfðinu dansa limirnir. Lagerbäck predikaði strax í upphafi að agi væri forsenda árangurs. Þar hefur hann tekið til eins og á öðrum sviðum. Ummæli leikmanna um þann mun sem er á umgjörð og undirbúningi er líklega besti vitnisburðurinn um þau framfaraskref sem hafa verið tekin hjá landsliðinu. Skref sem voru löngu tímabær og hefði mátt taka fyrr. Þetta lið er enn ungt að aldri og er aðeins að taka fyrstu skrefin í rétta átt. Með sama áframhaldi verður þetta lið komið á stórmót áður en langt um líður.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Víkingur - Thun | Víkingar þurfa stórsigur Íslenski boltinn Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Fleiri fréttir Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United ÍBV - Stjarnan | Slagurinn um þriðja sætið Víkingur - Thun | Víkingar þurfa stórsigur Elvis kominn í Bítlabæinn Nordsjælland - Valur | Lífsbarátta í Evrópukeppninni Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Kjartan orðinn leikmaður Brann Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Mark 17 ára trölls, rassinn úti og bikar á loft Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Þoka í Færeyjum veldur vandræðum „Ég er með stærri drauma“ Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Messi kom til baka við mikinn fögnuð áhorfenda Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Öll lið lenda í þessu Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Sjá meira