Hugmyndin kom í fjölskylduboði 19. mars 2013 11:00 Bræðurnir Pétur Rúnar og Valþór Örn stofnuðu afsláttarsíðuna Asni.is ásamt bróður sínum, Sverri Birgi. fréttablaðið/Pjetur "
Við byrjuðum með 18 tilboð þegar við opnuðum síðuna og stefnum á að koma með ný tilboð á hverjum föstudegi," segir Valþór Örn Sverrisson, sem ásamt bræðrum sínum, Pétri Rúnari og Sverri Birgi Sverrissonum, stofnaði tilboðssíðuna asni.is í byrjun mánaðarins. Asni.is er komin með rúmlega 1.800 notendur. Það kostar ekkert að skrá sig á síðuna og ekkert að nota tilboðin. "Við hugsuðum þetta fyrst þannig að við myndum rukka viðskiptavinina fyrir þjónustuna en svo sáum við að við kæmumst upp með að gera það ekki svo við völdum að gera það þannig frekar. Það þarf því aldrei að gefa upp neitt kreditkortanúmer eða neitt svoleiðis," segir Valþór, en innskráðir notendur geta notað tilboð síðunnar eins oft og þeir vilja á meðan þau eru í gildi. "Fólk gæti til dæmis fengið sér Línubát þrisvar sinnum á dag núna ef það væri mjög svangt," segir hann. Notkun á síðunni er einföld og þarf aðeins að prenta út tilboðin og sýna þau til að fá þau í gegn. Þá þurfa snjallsímaeigendur aðeins að sýna mynd af tilboðinu í símanum sínum þegar þeir vilja nota það. Bræðurnir fengu hugmyndina af síðunni í fjölskylduboði fyrir rúmu ári síðan en það var ekki fyrr en snemma á þessu ári sem þeir ákváðu að láta slag standa og koma henni upp. Spurður hvaðan nafnið komi segir Valþór það hafa gripið þá við skoðun á lista yfir laus lén á netinu. "Svo er aldrei að vita nema við höldum áfram og opnum í framtíðinni síður á við köttur.is eða geit.is," segir hann og hlær.- trs
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira