Nauðgað kvöldið fyrir heimferð Hanna Ólafsdóttir skrifar 30. apríl 2013 11:00 Mynd/ Getty.
Ráðist var á konu á þrítugsaldri og hún beitt líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi í verslunarhúsnæði í austurborginni um þarsíðustu helgi. Konan, sem er frá Ástralíu og var ferðamaður hér á landi, hlaut mikla líkamlega áverka eftir árásina. Hún hafði átt að fljúga til síns heima um morguninn. Árásin átti sér stað aðfaranótt 20. apríl en konan hafði verið að skemmta sér í miðbæ Reykjavíkur þegar hún þáði far með manni sem einnig er af erlendu bergi brotinn en býr hér á landi. Maðurinn fór með konuna í verslunarhúsnæði sem hann hafði aðgang að í austurborginni þar sem hann nauðgaði henni og beitti líkamlegu ofbeldi með þeim afleiðingum að hún hlaut mikla líkamlega áverka. Engin tengsl eru á milli árásarmannsins og konunnar. Eftir árásina keyrði maðurinn konuna á gistiheimili í miðborg Reykjavíkur þar sem hún hafði dvalið. Við komuna á gistiheimilið var strax kallað til lögreglu. Starfsmaður á gistiheimilinu segir að konan hafi komið á gistiheimilið um morguninn og að á útliti hennar hafi verið ljóst að hún hefði orðið fyrir árás. Samkvæmt heimildum var öðrum gestum og viðskiptavinum staðarins talsvert brugðið yfir ástandi konunnar. Lögreglumenn fluttu konuna á Neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis á Landspítalanum. Þar gekkst konan undir réttarfræðilega rannsókn auk þess sem gert var að áverkum hennar. Konan mun hafa flogið heim til Ástralíu sólarhring eftir árásina. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir gerandann hafa verið handtekinn. Hann sat í gæsluvarðhaldi frá 20. til 24. apríl en sætir nú farbanni til 14. maí næstkomandi. Að sögn Friðriks Smára hefur rannsókn málsins gengið vel og er á lokastigi.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira