"Nuk hefur það gott, það er kraftaverk að hún sé komin aftur" Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 27. september 2013 23:13 Nuk og Susanne eru sameinaðar á ný og gleðjast báðar yfir því. Samsett mynd „
Nuk hefur það gott, það er kraftaverk að hún sé komin aftur og við elskum hana svo mikið,“ segir Susanne Alsing eigandi Nuk í þakkarbréfi til Íslendinga. Í bréfinu þakkar stuðninginn sem hún fékk eftir að köttur hennar, Nuk, týndist. Segist hún í raun alveg forviða á því hvernig fólk kom saman hér á landi og tók þátt í leitinni. Hún hafi fengið stuðning og að fólk hafi verið svo indælt og hjálpfúst, leitað að Nuk með vasaljósum kallandi nafn hennar. „Bílar keyrðu hægt um og leituðu að henni. Þetta var ótrúlegt. Þakka ykkur innilega fyrir.“ Þetta kemur fram í bréfinu sem hún sendi Dýrahjálp í dag. Í bréfinu tekur hún jafnframt fram að Nuk sé alls ekki vön því að vera úti svo lengi en hún var týnd í 36 klukkustundir. Alsing sagði að kötturinn hræddist auðveldlega og að henni komi ekki vel saman við önnur dýr, heldur ekki við aðra ketti. Fundarlaunin sem Alsing hafði lofað finnanda renna annars vegar til Dýrahjálpar Íslands og hins vegar til Kattholts. Sonja Stefánsdóttir hjá Dýrahjálp Íslands segir starfsmenn félagsins ákaflega þakkláta fyrir framlagið sem nemur 70 þúsund krónum. „Mun það koma sér vel í okkar starfi.“ Í bréfinu lýsir Alsing einnig augnablikinu þegar hún fann köttinn sinn aftur: „Ég hafði gengið um og kallaði nafn hennar og allt í einu heyrði ég mjálm og lítill svartur haus birtist. Ég settist niður og talaði mjúklega til hennar. Hún kom til mín og ég tók hana upp og bar hana að flugvélinni. Ég varði nóttinni í flugvélinni með Nuk og hún borðaði, drakk og var mjög glöð. Að sjálfsögðu var ég það líka.“ Í lok bréfsins segir Alsing einfaldlega: „Takk Ísland. Takk fyrir alla hjálpina og fyrir þann stuðning sem ég fékk.“
Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Sjá meira