Finn til samkenndar með tíkinni minni Sara McMahon skrifar 9. mars 2013 06:00 Leikkonan Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir leikur Golden Retriever-tík í leikverkinu Hundalógík sem frumsýnt er annað kvöld. fréttablaðið/Vilhelm „
Maður getur auðvitað ekki vitað hvernig það er að vera hundur, en ég finn að minnsta kosti til samkenndar með tíkinni minni,“ segir leikkonan Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir. Hún fer með hlutverk í leikverkinu Hundalógík, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld. Leikstjóri er Bjartmar Þórðarson og aðrir leikarar eru Jón Stefán Sigurðsson, Ingi Hrafn Hilmarsson og Jón Svavar Jósefsson. Hundalógík er eintalasafn þar sem hugarheimur hunda er kannaður. Ólöf Hugrún leikur Golden Retriever-tík og Beagle-hund sem vinnur hjá tollinum. Áhorfendur fá einnig að kynnast Jack Russell Terrier sem er sísvangur og blendingshundi sem hefur gaman af því að gramsa í ruslatunnum. Æfingar á verkinu hófust fyrir jól og að sögn Ólafar Hugrúnar munu leikararnir ekki gerast mjög bókstaflegir í túlkun sinni á hundunum. „Við tölum mannamál og erum í fötum á sýningunni. Til að undirbúa okkur fyrir hlutverkið skoðuðum við bæði karakterana sem við leikum og hundategundirnar sjálfar. En svo tala sögurnar sínu máli,“ útskýrir hún. Ólöf Hugrún segir leikarana fjóra vera mikla hundavini, þó að sjálf eigi hún aðeins ketti. „Ég hef átt hund, Jón Stefán hefur átt hund og Jón Svavar ólst upp í sveit og er jafnframt sá eini sem hefur verið bitinn af hundi. Mamma mín á hund og það er alltaf gott að heilsa upp á hann þegar maður er niðurdreginn; hundar eru fallegar sálir sem vilja allt fyrir mann gera.“ Hún lýsir verkinu sem „tragikómedíu“ sem veki fólk til umhugsunar bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. „Það er fyndið að fólk sé að segja hundasögur en á sama tíma þá ráða menn algjörlega yfir þessum dýrum. Gleðin og sorgin haldast alltaf í hendur.“ Hundalógík er frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum þann 10. mars. Einnig eru fyrirhugaðar sýningar 17. og 19. mars.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira