Vitnisburður um vinnualka Freyr Bjarnason skrifar 14. mars 2013 06:00 Páll Óskar afhjúpar nýja heimasíðu, Palloskar.is, á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „
Þetta er að verða ógeðslega flott,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson um nýju heimasíðuna sína sem opnar á föstudaginn. Á Palloskar.is verður allur hans ferill rakinn í tímalínu sem hefst á fæðingarári hans, 1970. Hægt verður að hlusta ókeypis á öll lögin sem hann hefur sjálfur gefið út, auk þess sem óútgefin lög, sjaldheyrðar upptökur, tónlistarmyndbönd, ljósmyndir og blaðagreinar frá 22 ára ferli hans fá sinn sess. „Þú getur valið þau lög sem þú vilt, ýtt á play-takkann og farið svo að ryksuga heima hjá þér,“ segir Páll Óskar. „Þessi heimasíða er eiginlega vitnisburður um vinnualka. Það hefur komið sjálfum mér á óvart hvað þetta er búin að vera rosalega mikil vinna í gegnum tíðina.“ Popparinn tekur fram að þetta er ekki sölusíða og því verður hvorki hægt að kaupa lög, plötur né tónleikamiða á henni. Í staðinn ætlar hann að dekra við hina fjölmörgu aðdáendur sína með því að uppfæra hana reglulega og frumflytja þar ný lög eða tónlistarmyndbönd þegar sá gállinn er á honum. „Það eru nokkrar smáskífur í augsýn. Þetta er eitthvað sem ég ætla að spila út smám saman,“ segir hann en vill ekki lofa nýrri plötu fyrir jólin enda brjálað að gera við tónleikahald. Palli kann strákunum hjá Wedo, þeim Guðmundir Ragnari Einarssyni, Charles Christie og Orra Helgasyni, bestu þakkir fyrir að hanna fyrir sig Palloskar.is en sú vinna hefur staðið yfir í þrjá mánuði. Heimasíðan verður einmitt afhjúpuð í höfuðstöðvum Wedo. -fb
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Sjá meira