Hrafnista hefur vínsölu í Hafnarfirði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 2. október 2013 08:00 Úlfar Garðar Randversson, í miðið, er spenntur fyrir barnum, eins og vinir hans. Kaffisala er þegar hafin í Hrafnistu í Hafnarfirði og vínveitingar eru í burðarliðnum þannig að úrvalið verður eins og í kaffihúsinu Skálafelli í Laugarásnum. Fréttablaðið/Daníel „
Viðtökurnar hafa verið hreint út sagt gríðarlega góðar,“ segir Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, um rekstur kaffihúss með vínveitingum á hjúkrunarheimilinu í Reykjavík. Hefja á sams konar rekstur í Hafnarfirði. Íbúar sem Fréttablaðið hitti á kaffistofunni í Hafnarfirði í gær voru himinlifandi með fyrirætlanirnar. „Við tröllum á meðan við tórum,“ sagði Úlfar Garðar Randversson, sem getur ekki beðið eftir dælunni. Pétur segir afar vel hafa tekist til með kaffihúsið Skálafell sem opnaði í Hrafnistu í Laugarásnum fyrir rúmu ári. „Það er mikil ánægja með framtakið, bæði hjá heimilisfólki og ættingjum,“ segir forstjórinn og undirstrikar að í raun sé Skálafell hefðbundið íslenskt kaffihús sem selur kaffi, súkkulaðitertur og pönnukökur, auk þess að hafa fengið leyfi fyrir léttvíni og bjór. „Salan á léttvíni og bjór er reyndar ekki nema fimm prósent af heildarsölunni.“ Að sögn Péturs kom upp umræða í framhaldi af opnun Skálafells um að sams konar fyrirkomulag yrði á heimili Hrafnistu í Hafnarfirði. Nú sé undirbúningur að því langt kominn og vínveitingaleyfið sé fengið. „Það er mikill velvilji hjá bæjarstjóranum að þetta gangi hratt og vel fyrir sig innan kerfis Hafnarfjarðarbæjar,“ segir Pétur, sem kveður aðstöðuna í Hafnafirði enn sem komið er fremur kaffihorn en kaffihús. „Það bíður þangað til við förum í stærri framkvæmdir að þetta verði virkilega grand kaffihús eins og Skálafellið í Reykjavík.“Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, segir einnig stefnt að opnun kaffihúss við Hrafnistu í Kópavogi. Fréttablaðið/ArnþórFyrirkomulagið í Hafnarfirði verður það sama og í Reykjavík hvað það varðar að veitingasalan er opin almenningi. „Hér getur hver sem er komið og keypt kökur og kaffidrykki og það verður boðið upp á léttvín og bjór eins og í Reykjavík,“ segir Pétur. Hrafnista rekur einnig hjúkrunarheimili í Kópavogi sem er sambyggt þjónustumiðstöð sem bærinn rekur. „Við höfum lagt fyrir bæinn tillögu um að opna kaffihús þar en höfum ekki fengið formleg svör frá bæjarstjórn Kópavogs,“ segir Pétur sem kveður þann kaffihúsarekstur geta verið hvort sem er á hendi Hrafnistu eða Kópavogsbæjar. Nokkur umræða skapaðist í aðdraganda þess að vínveitingar hófust á Hrafnistu í Reykjavík. Aðspurður segir Pétur raddir um að heimilisfólkið myndi leggjast í áfengisneyslu ekki hafa reynst sannspáar. „Við höfðum sjálf ekki miklar áhyggjur af því, ekki frekar en gengur og gerist á öðrum kaffihúsum í landinu. Enda er hér bara venjulegt fólk,“ segir forstjóri Hrafnistu.
Mest lesið „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax Innlent Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Innlent Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent