Zlatan skoraði tvö en Ronaldo skoraði þrjú og fór á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2013 19:30 Cristiano Ronaldo fagnar í kvöld.
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu þegar Portúgalir tryggðu sig inn á HM í Brasilíu með 3-2 sigri á Svíþjóð í Friends Arena í Stokkhólmi í kvöld. Portúgal vann því 4-2 samanlagt. Þetta var einvígi Cristiano Ronaldo og Zlatan Ibrahimović fyrir leikina og ekki breyttist sú skoðun manna enda skoruðu þeir öll mörkin í leikjunum tveimur. Cristiano Ronaldo stóð uppi sem sigurvegari, skoraði fjögur mörk í leikjunum tveimur og sigurmarkið í báðum leikjum. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Cristiano Ronaldo Portúgal í 1-0 á 50. mínútu eftir frábæra skyndisókn og stungusendingu frá João Moutinho. Von Svía var því veik en Zlatan Ibrahimović breytti því snögglega með tveimur mörkum á fjórum mínútum. Fyrra markið skoraði hann með skalla efir hornspyrnu frá Kim Källström og það seinna gerði hann með skoti beint úr aukaspyrnu. Cristiano Ronaldo átti hinsvegar lokaorðið með því að skora tvö mörk á þremur mínútum og tryggja Portúgal endanlega sæti á HM. Fyrra markið skoraði Ronaldo á 77. mínútu eftir sendingu Hugo Almeida en það síðara á 79. mínútu eftir að hafa sloppið í gegn eftir langa sendingu frá João Moutinho.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Sjá meira