Fótbolti

Rúrik: Eiður Smári er goðsögn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
„Eiður Smári Guðjohnsen er lifandi goðsögn í íslenskum fótbolta. Maður hefur lært ótrúlega mikið af honum,“ sagði Rúrik Gíslason skömmu eftir að Eiður Smári Guðjohnsen hafi lýst því yfir í viðtali við Rúv að hann hafi leikið sinn síðasta landsleik á ferlinum.

Rúrik stóð álengdar og fylgdist með þegar að Eiður Smári brotnaði saman þegar hann var spurður um hvort leikurinn hefði markað lok landsliðsferils hans.

„Það hefur verið heiður að fá að spila fótbolta með honum. Þessi drengur mun verða elskaður af íslensku þjóðinni svo lengi sem hann lifir. Hann er einfaldlega goðsögn.“

Rúrik sagði að vonbrigðin hafi verið gríðarleg eftir leik enda tapaði Ísland fyrir Krótíu, 2-0, og varð þar með af farseðlinum til Brasilíu þar sem HM fer fram næsta sumar.

„Króatarnir gerðu okkur hrikalega erfitt fyrir. Við urðum undir í flestum þáttum í fyrri hálfleik - hvort sem það voru skallaboltar, návígi eða sprettir. Við töpuðum boltanum auðveldlega og það virtist vera mikil spenna í okkar mönnum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×