Viðræðuhlé stoppaði 1,4 milljarða í styrki Sunna Valgerðardóttir skrifar 25. júní 2013 09:00 ESB auglýsti eftir verkefnum með áherslu á byggða-, atvinnu- og velferðarmál. Stefnt var að því að nota 8,3 milljónir evra í allt að tuttugu verkefni á landinu öllu. Ekkert fjármagn hefur þó borist. Fréttablaðið/Anton
Fjárveitingar Evrópusambandsins (ESB) í formi styrkja hingað til lands eru allar í biðstöðu eftir að íslensk stjórnvöld ákváðu að gera hlé á aðildarviðræðunum. ESB auglýsti eftir umsóknum fyrir 8,3 milljónir evra, eða um 1,4 milljarða íslenskra króna, í lok síðasta árs. Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís, segir allt ferlið í biðstöðu og boltann vera hjá stjórnvöldum. „Við vitum ekkert hvenær verður gengið frá þessum styrkjum,“ segir hann. „Við hefðum gert ráð fyrir því að það væri búið að greiða þetta út á þessum tímapunkti.“ Umsóknarfrestur vegna styrkjanna rann út í nóvember í fyrra en það liggur fyrir hvaða verkefni verða valin ef féð verður greitt út. Ekki er búið að gera samninga og skrifa undir skjöl um einstök verkefni og ekki liggur enn fyrir hvort það verði nokkurn tímann gert. Hallgrímur vill þó ekki gefa upp hvaða verkefni hafi orðið fyrir valinu.Gunnar Bragi SveinssonGunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku að ráðuneytið væri nú að skoða hvaða verkefni væru beintengd viðræðunum og hver ekki. Þeim sem hægt væri að tengja beint við viðræðurnar yrði ekki haldið til streitu en styrkir frá ESB yrðu þegnir fyrir önnur verkefni. „Það er ljóst að styrkirnir geta nýst okkur að einhverju leyti sem EES-ríki en þarna eru líka verkefni sem eru beintengd aðildarumsókninni og hvert verkefni verður metið fyrir sig,“ sagði Gunnar Bragi. Auglýst var eftir verkefnum sem voru á sviði atvinnuþróunar- og byggðamála og velferðar- og vinnumarkaðsmála. Stefnt var að því að verja öllum 8,3 milljónunum til allt að tuttugu verkefna um land allt í ár, en þau áttu að taka mið af „Ísland 2020“ stefnumörkuninni. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis átti að vera 200 þúsund evrur og hámarkið ein milljón.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira