Jennifer Aniston fer með aðalhlutverkið í væntanlegri kvikmynd sem byggð er á skáldsögunni Switch eftir Elmore Leonard. Frammistaða Aniston þykir svo góð að hún fékk leikstjóra myndarinnar, Dan Schechter, til að brynna músum.
Aniston er best þekkt fyrir gamanleik en rær nú á önnur mið, með góðum árangri sé að marka orð leikstjórans. „Hún sýnir einstakan leik í myndinni og ég er viss um að fólk verður dolfallið þegar það sér hana. Ég held hún muni koma öllum á óvart, hún er svo hæfileikarík og ég grét er ég horfði á hana,“ sagði Schechter í viðtali við THR.
Grætti leikstjórann
