Fótbolti

700 miðar farnir til Íslendinga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Áhorfendur á Laugardalsvelli á föstudaginn.
Áhorfendur á Laugardalsvelli á föstudaginn. Mynd/Vilhelm
Alls hefur KSÍ haft milligöngu um að selja Íslendingum 700 miða á leikinn mikilvæga gegn Króatíu á þriðjudaginn.

Þetta staðfesti Ómar Smárason, fjölmiðalfulltrúi KSÍ, í samtali við Vísi nú í morgun. Landsliðið heldur utan eftir hádegi.

Fram kom á Vísi í morgun að Króatar hefðu selt alls níu þúsund miða en Maksimir-leikvangurinn í Zagreb tekur rúmlega 38 þúsund manns í sæti.

Ekki er útilokað að Íslendingar verði enn fleiri á vellinum en mikill áhugi er á leiknum meðal íslenskra knattspyrnuáhugamanna.

Fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2014 í Brasilíu lauk með markalausu jafntefli á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið. Síðari leikurinn fer fram ytra á þriðjudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×