Fótbolti

Strákarnir fá flýtimeðferð í Leifsstöð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Allt er gert til að gera ferðalag leikmanna Íslands til Króatíu eins auðvelt og mögulegt er.

Starfsmenn KSÍ voru mættir í flugsstöð Leifs Eiríkssonar nú rétt fyrir hádegi til að undirbúa brottför landsliðsins til Zagreb nú síðdegis.

Leikmenn og þjálfarar fara hins vegar ekki frá hóteli liðsins í Reykjavík fyrr en eftir hádegi og fá þeir að fara beint út í vél eftir komuna til Keflavíkur.

Ómar Smárason, Gunnar Gylfason og Sigurður Sveinn Þórðarson - betur þekktur sem Siggi Dúlla - fara með landsliðinu hvert sem er og voru kátir þegar ljósmyndari Vísis hitti á þá í flugstöðinni í morgun.

Ísland mætir Króatíu ytra á þriðjudag í síðari viðureign liðanna í umspili um laust sæti á HM 2014 í Brasilíu. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli á Laugardalsvellinum á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×