Þetta er helvíti svekkjandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. nóvember 2013 14:21 „
Ég hef misst af mörgum mikilvægum leikjum en þetta er einmitt sá leikur sem ég vildi alls ekki missa af," sagði Kolbeinn Sigþórsson við Vísi í dag. Kolbeinn var ekki með í för þegar að íslenska landsliðið í knattspyrnu hélt utan til Zagreb í dag fyrir síðari leikinn í umspilsrimmunni gegn Króatíu um sæti á HM 2014 í Brasilíu. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli en Kolbeinn var borinn af velli seint í fyrri hálfleik eftir að hafa meiðst á ökkla. Það kom svo endanlega í ljós í morgun að Kolbeinn myndi ekki ná sér fyrir leikinn á þriðjudaginn. „Ég gæti verið betri,“ sagði Kolbeinn þegar að blaðamaður heyrði í honum hljóðið í dag. Hann var vitanlega svekktur enda mikilvægasti landsleikur í sögu Íslands fram undan. „Ég var að vonast til að ég fengi einhverja undrameðferð á þessum meiðslum og ég reyndi eins og ég reyndi eins og ég gat með sjúkrateymi landsliðsins - bæði strax eftir leikinn og í gær. En það er svo mikil bólga í ökklanum að það þarf einfaldlega meiri tíma til að ná henni niður.“ „Það verður bara að hafa það. Við erum með gott lið og það kemur maður í manns stað,“ bætir Kolbeinn við og huggar sig við það að meiðslin virðast ekki vera mjög alvarleg.Mynd/Vilhelm„Ég á eftir að fara í frekari rannsóknir og það er ekki enn komið á hreint hvort að liðböndin séu sködduð. En þetta virðist bara vera slæm tognun. Mér er nú ráðlagt af læknum Ajax að vera heima á Íslandi í nokkra daga á meðan að bólgan er að jafna sig þar sem að hún gæti orðið verri í löngu flugi.“ Kolbeinn segir erfitt að gera sér nákvæmlega grein fyrir því hvað hafi gerst þegar hann missteig sig. „Ég ætlaði að fá boltann fyrir aftan mig og steig í jörðina af miklu afli. Annað hvort hef ég gert of mikið eða grasið hefur einfaldlega gefið sig - það er erfitt að segja. Fyrst og fremst virðist þetta bara vera óheppni.“ „Mér fannst völlurinn laus í sér og kannski hafði það áhrif. En svona lagað hefur aldrei áður gerst hjá mér.“ Hann fann strax að hann hefði tognað illa. „Ég hef áður fengið svipaða tognun og það var aðeins verra en þetta. En þá strax gerði ég mér grein fyrir því að seinni leikurinn gegn Króatíu væri í hættu og það var mjög svekkjandi.“ „En ég á ekki von á því að vera lengi frá. Það veltur á því hvernig næstu dagar verða,“ sagði Kolbeinn en lið hans, Ajax, mætir Barcelona í Meistaradeild Evrópu eftir níu daga. „Vonandi verður batinn skjótur og ég næ þá síðustu tveimur leikjunum okkar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Sjá meira