Ljósin tendruð á Óslóartrénu á sunnudaginn Stefán Árni Pálsson skrifar 28. nóvember 2013 15:17 Oslóartréð verður tendrað á sunnudaginn.
Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli klukkan fjögur á sunnudaginn. Rúm sextíu ár eru síðan að íbúar Óslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf og hefur það ávallt átt sinn stað á Austurvelli. Jólastjörnurnar Sigríður Thorlacius og Ragnhildur Gísladóttir syngja jólin inn í hjörtu landsmanna ásamt einvala liði tónlistamanna þegar ljósin verða tendruð á Oslóartrénu á Austurvelli sunnudaginn 1. desember næstkomandi kl.16. Viðburðurinn hefur um áratuga skeið markað upphaf jólahalds í borginni og á sér fastan sess í hjörtum borgarbúa sem fjölmenna á viðburðinn hvert ár. Kynnir er okkar ástsæla Gerður G. Bjarklind. Fyrir hönd Reykvíkinga mun Jón Gnarr veita grenitrénu viðtöku úr hendi Dag Wernø Holter sendiherra Noregs og Rinu Marin Hansen, borgarfulltrúa Verkamannaflokksins í Osló. Að loknu þakkarávarpi mun hinn sjö ára gamla norsk-íslenski Ólafur Gunnar Steen Bjarnason tendra ljósin á trénu. Heyrst hefur að Giljagaur, Gluggagægir og Stúfur líti við, en þeir hafa laumað sér í bæinn til að segja börnunum sögur og syngja jólalög ásamt hljómsveit. En það er ekki allt of sumt því þeir ku einnig vera að undirbúa setningu heimsmets í Hókí pókí á Austurvelli og vonast til þess að öll börn í Reykjavík sláist með þeim í hópinn. Aðrir góðir gestir birtast einnig á sviðinu við Austurvöll. Í fyrsta sinn mun einn af sigurvegurum stóru upplestrarkeppni grunnskóla Reykjavíkur frumflytja kvæði um Gluggagægi. Er það Stefanía Ragnarsdóttir nemandi í Langholtsskóla og sigurvegari í Laugardal, Háaleiti og Bústaðarhverfi sem flytja mun stúfhenduna að þessu sinni. Gluggagægir er áttundi óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins og rennur allur ágóði af sölu hans til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Í óróanum fer saman íslenskur menningararfur, ritsnilld og hönnun - ásamt mikilsverðu málefni. Vilborg Dagbjartsdóttir og Siggi Eggerts leggja félaginu lið með túlkun sinni á Gluggagægi –Vilborgi yrkir málið og Siggi í stálið. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt verkefnið en óróar Styrktarfélagsins hafa prýtt Oslóartréð, jólatré Reykvíkinga og verið eina skrautið á trénu auk jólaljósanna. Eimskip hefur frá upphafi flutt Oslóartréð til Reykjavíkur, borgarbúum að kostnaðarlausu. Borgarstjóri, Jón Gnarr tók þátt í að fella 12 metra hátt grenitréð í skóglendi utan við Oslóborg. Tréð er 42. ára gamalt og var valið fyrir 10 árum síðan sem framtíðar vinagjöf til Reykjavíkurbúa.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira