Bræðralag múslima lætur ekki undan Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. júlí 2013 17:10 Hermenn fyrir utan forsetahöllina í Kaíró. Mynd/AP
Bræðralagsmúslima stendur fast við kröfu sína um að Múhamed Morsi fái forsetaembættið á ný. Samtökin leggja þó áherslu á að öll mótmæli fari fram með friðsamlegum hætti. „Við viljum halda áfram friðsamlegu andófi okkar gegn hinu blóðuga valdaráni hersins, sem gert var í andstöðu við stjórnskipunarlegt lögmæti,” segir í yfirlýsingu frá Bræðralaginu í dag. „Við treystum því að friðsamlegur og almennur vilji fólks muni sigrast á valdbeitingu og kúgun.” Bræðralagið, sem hefur mikið fjöldafylgi í Egyptalandi, hefur neitað að starfa með bráðabirgðastjórninni, sem nú reynir að koma á ró í landinu og boðar bæði endurskoðun stjórnarskrárinnar og kosningar til þings og forseta. Leiðtogar Bræðralagsins hafa margir verið handteknir og Morsi situr enn í stofufangelsi. Meira en fimmtíu manns létu lífið í átökum á mánudaginn, flestir þeirra stuðningsmenn Morsis. Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur fleiri leiðtogum Bræðarlagsins, þar á meðal Múhamed Badie, sem er æðsti andlegi leiðtogi samtakanna. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Föstumánuðurinn ramadan hófst í vikunni og þá flykkist fólk út á götur á kvöldin. Hátíðarstemmning ríkir fram á nótt en lítið þarf út af að bera til að upp úr sjóði, þegar ástandið er svo viðkvæmt sem nú er.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Sjá meira