Lífið

Það sem lifir, það truflar

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Leikstjórinn í aksjón Óskar stýrir leikarahópnum í Fiskar á þurru landi af yfirvegun.
Leikstjórinn í aksjón Óskar stýrir leikarahópnum í Fiskar á þurru landi af yfirvegun. Fréttablaðið/Vilhelm
Óskar Jónasson kvikmyndaleikstjóri er á fullu að klára sjónvarpsmyndina Fiskar á þurru landi sem sýnd verður á RÚV um páskana. Hann er líka að undirbúa Pressu 4, á leið til Bandaríkjanna að leikstýra kvikmynd og pabbi í hálfu starfi. Auk þess stundar hann sjósund og fjallgöngu, keppir í skeggvexti og reynir að finna handrit með bitastæðum kvenhlutverkum.

Óskar er ekki fyrr sestur en hann byrjar að tala fjálglega um sjónvarpsleikrit RÚV í gamla daga og hversu skemmtilegt það sé að fá að taka þátt í þeirri hefð. Áður en hann missir sig í útleggingum á mikilvægi leikins efnis í íslensku sjónvarpi er þó rétt að stoppa hann af og snúa sér að öðru. Í bili.

Ertu alveg kominn í sjónvarpsmyndirnar? Engin stór bíómynd á teikniborðinu? „Jú, ég er reyndar að undirbúa kvikmynd sem verður tekin í sumar. Það er hálfbandarískt verkefni, heitir End of Sentence og byrjar í Alabama en endar við Mývatn. Fjallar um feðga sem eru að fara með ösku móður sonarins á æskuslóðir hennar, til að dreifa henni yfir stöðuvatn. Vandamálið er bara að þessir feðgar hata hvor annan. Þeir neyðast samt til að leggja í þessa ferð, þar sem þetta var hinsta ósk móðurinnar."

Verða aðalleikararnir þá bandarískir? „Já, og það eru viðræður í gangi núna við stór nöfn sem ég má ekki upplýsa um." Þetta er að verða standardsvar hjá kvikmyndagerðarmönnum. „Það er alveg ástæða fyrir því. Ef maður byrjar að blaðra of snemma í fjölmiðlum hér á Íslandi, þá ratar það út og getur dregið dilk á eftir sér þegar ekki er búið að undirrita samningana."

Ánægður með Contraband

Talandi um bandarískar kvikmyndir, hvað fannst þér um Contraband? „Mér fannst frábærlega gaman og skemmtileg rússíbanaferð að horfa á hana. Fannst gaman að sjá hvað handritið okkar Arnaldar virkar vel í Hollywood – handritið okkar plús 25 milljónir dollara, reyndar. Balti gerði þetta mjög vel, en mér fannst svona bæði og hvort breytingarnar voru nauðsynlegar. Myndin lengdist um tuttugu mínútur og það bættust við karakterar. Ég reyni nú yfirleitt að fækka karakterum þegar ég endurskrifa, halda einfaldleikanum, sem mér finnst vera styrkur. Það var líka ákaflega gaman að sjá velgengni myndarinnar, hvað hún náði til margra."

Það kom aldrei til tals að þú leikstýrðir henni sjálfur? „Nei, ég pældi ekki einu sinni í því, skal ég segja þér, vegna þess að ég kann bara mjög vel við að vinna á Íslandi. Hér er mín fjölskylda, mitt umhverfi og minn vettvangur. Ég er ekkert að gera í því að reyna að koma mér til útlanda. Ég hef alveg skoðað þau mál, en ef ég ætti að ná einhverri fótfestu í L.A., til dæmis, þá þyrfti ég að búa þar og það bara kemur ekki til greina. Ég á þrjár dætur sem ég er mikið með og mig langar ekkert til að kúpla mig út úr því. Þær eru hryggsúlan í lífinu."

Gott á kallana

Eigandi þrjár dætur, hvað finnst þér um umræðuna í kjölfar Eddunnar um stöðu kvenna í kvikmyndabransanum? „Hvað finnst mér um hana, já? Satt best að segja finnst mér vandamálið ekki liggja eingöngu hjá okkur körlunum. Ég held að þetta tengist því að á grunnskólaárunum, þegar krakkar kveikja á hinum og þessum áhugamálum, höfum við tilhneigingu til að segja við stelpurnar: „En hvað þú ert sæt" eða „þú ert svo fín í þessum kjól" en hins vegar „vá, hvað þú ert duglegur" og „en hvað þú ert sterkur" við strákana. Að vinna í kvikmyndagerð er dálítið matsjó.

Ég var viðloðandi Flugbjörgunarsveitina í stuttan tíma og vinnan í kvikmyndum minnir mig á björgunarsveitarstarf. Þetta er mikið volk, mikið óöryggi og hark sem virðist höfða meira til karla en kvenna. Auðvitað þarf það ekkert að vera þannig, það eru til dæmis alltaf fleiri og fleiri konur að koma í björgunarsveitirnar. En hjá minni kynslóð allavega hefur tilhneigingin verið sú að konurnar hafa farið í framleiðsluna og framkvæmdastjórnina, nokkrar í klippinguna og svo eru smink og búningar auðvitað klassísk kvennastörf. Þetta getur vel breyst, en það gæti tekið einhvern tíma."

Reynir að vera meðvitaður

Ertu meðvitaður um þessa orðræðu þegar þú talar við dætur þínar? „Ég er að reyna það, já. Reyni að vera ekki svona kynjaskiptur í hvatningunum."

Það virðist nú samt enn þá vera helsta hlutverk kvenna í kvikmyndum að vera sætar… „Ég hef séð nokkrar kvikmyndir sem eru skrifaðar og leikstýrt af konum þar sem karlarnir fá sama hlutskipti og konurnar í mainstream-kvikmyndunum. Þeir eiga það til að verða dálítið tvívíðir og symból fyrir huggulega ídeal karlmenn. Mér finnst mjög fróðlegt að sjá það, því þá skynjar maður svo sterkt hvernig við karlmennirnir skrifum kvenpersónur. Þegar ég sé þessar myndir þá hugsa ég: „Gott á okkur. Nú sé ég hvað við erum að gera í níutíu prósentum af þeim kvikmyndum sem við höfum framleitt. Við erum að búa til steríótýpur af konum sem eru yfirleitt einhver keppikefli, „trophy wifes"." Í gamanmyndum eru þær mjög oft skynsama úrtölukonan sem hefur góð áhrif á ólíkindatólið sem karlmaðurinn er. Klassískasta dæmið er auðvitað Homer Simpson og Marge. Ég er alltaf að leita að verkum og sögum þar sem þetta er ekki upp á teningnum. Alltaf að reyna að sparka í rassinn á sjálfum mér með að bæta skilninginn á kvenpersónunum og gera þær dýpri."

Gott samkomulag

Óskar og Eva María Jónsdóttir skildu fyrir rúmum fjórum árum og hafa sameiginlegt forræði yfir dætrunum þremur, sem eru hjá þeim til skiptis. Óskar segir líf sitt að miklu leyti snúast um þær. „Líf mitt snýst um stelpurnar mínar annars vegar og vinnuna hins vegar. Ég reyni að vera með stelpunum alltaf þegar ég er ekki að vinna en auðvitað er þetta tarnavinna þannig að það byggist á góðu samkomulagi við mína fyrrverandi, sem er ekki ókunnug þessum bransa og hefur skilning á því að þetta er svona. Við reynum að leysa þau vandamál sem upp koma í sameiningu, en auðvitað eru alltaf einhverjir árekstrar, lífið er bara þannig. Eins og þýska máltækið segir: Það sem lifir, það truflar."

Heilbrigðir vitleysingar

Sagan segir að þú hafir breytt lífsstílnum frá a-ö eftir skilnaðinn, er eitthvað til í því? „Eftir skilnaðinn hrökk ég aðeins inn í skel mína í tæp tvö ár og var dálítið út af fyrir mig. En ég er svo heppinn að þekkja frábæran hóp af karlmönnum á mínu reki sem ég kynntist í gegnum kajaksportið hérna um árið. Þetta eru heilbrigðustu vitleysingar sem um getur og við stundum sjósund í hverri viku, en ekki nóg með það heldur eiga sér stað alls kyns bulluppátæki eins og til dæmis að svelta sig í sólarhring áður en við förum í sjóinn, sem ég get engan veginn mælt með. Oft förum við líka í fjallgöngu fyrir vinnu, og leggjum þá af stað fyrir klukkan sex á morgnana, keppum í skylmingum, bogfimi og skeggvexti, til dæmis. Þetta hefur hjálpað mér mikið og mín stefna eftir skilnaðinn hefur verið að leita frekar þangað en á djammið og barina.

Mér finnst alveg gaman að kíkja út á lífið annað slagið, en ég reyni að gera ekki mikið af því vegna þess að það tekur sinn toll og það er margt annað í lífinu sem heillar mig meira. Núna er ég til dæmis kominn með nýtt hobbí, sem er að gera upp fjárhús og hlöðu vestur á fjörðum. Það er við Patreksfjörðinn hjá yndislegu fólki sem rekur bændagistingu í Hænuvík. Ég hef farið til þeirra með stelpurnar mínar undanfarin tólf sumur og við höfum alltaf gist í litlu steinhúsi niðri á fjörukambinum. Þar rétt hjá eru fjárhús og hlaða frá millistríðsárunum sem ég hef í gegnum tíðina verið að horfa á og hugsa að þetta gæti orðið eitthvað. Í haust ræddi ég þetta svo við hjónin á bænum, Gutta og Maríu, og það var bara eins og þau hefðu beðið eftir að ég styngi upp á þessu. Í nóvember fór ég svo vestur með kerru fulla af byggingarefni og byrjaði, vann baki brotnu í tólf daga og kom miklu í verk með aðstoð hjónanna í Hænuvík, dætra þeirra og verðandi tengdasonar. Í næsta mánuði fer ég svo vestur og byrja að steypa og tek næstu skref. Þetta verða mörg hænuskref og á eftir að taka mörg, mörg ár."

Ertu svona dellukarl? „Mér finnst þetta alls engin della, en jú – ég verð dálítið heltekinn af hinu og þessu. Þessa framkvæmd finnst mér ég hins vegar hafa ráðist í að vandlega yfirveguðu máli. Kvikmyndagerð er auðvitað dellu-áhlaupa-þráhyggjuviðfangsefni þannig að það er ágætt að hafa þann karakter til brunns að bera."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.