Flugvöllurinn eitt af stóru málunum fyrir kosningarnar Heimir Már Pétursson skrifar 20. ágúst 2013 13:38 Friðrik Pálsson hótelhaldari er einn þeirra sem stendur fyrir undirskriftasöfnuninni.
Hátt í þrjátíu þúsund manns hafa á undanförnum fjórum sólarhringum skrifað undir áskorun þess efnis að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýri. Að óbreyttu skipulagi verður aðeins ein flugbraut eftir í Vatnsmýri eftir þrjú ár. Einn forsprakka undirskriftanna segir flugvöllinn verða eitt aðal kosningamálið fyrir borgarstjórnarksoningarnar næsta vor. Samkvæmt gildandi skipulagi verður tveimur af þremur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar lokað árið 2016 eða á miðju næsta kjörtímabili borgarstjórnar. Flugvöllurinn á svo með öllu að vera horfinn árið 2024. Síðast liðinn föstudag hófst undirskriftasöfnun á Netinu þar sem hvatt er til þess að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri og fyrir hádegi höfðu um 27 þúsund og fimm hundruð manns skrifað undir áskorunina. Friðrik Pálsson hótelhaldari er einn þeirra sem stendur fyrir undirskriftasöfnuninni. Hann segir undirskriftunum fjölga hraðar en hann vonaðist eftir, en ríflega 80 prósent landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni samkvæmt nýjustu könnunum. „Hins vegar hafa viðbrögðin, bæði í símtölum, tölvupóstum og svo framvegis verið þannig að við erum sannfærðir um að þetta var mjög tímabært að gera þetta. Fólk er mjög þakklátt að mega taka þátt í því að fá að segja skoðun sína á þessu máli,“ segir Friðrik. Það megi jafnvel orða það þannig að fólki hafi verið orðið mál. Friðrik segir ekki útilokað að koma í veg fyrir að brautum flugvallarins verði fækkað eftir þrjú ár í eina og síðan lokað alveg eftir ellefu ár. Ef fram komi nógu margar athugasemdir hljóti yfirvöld að þurfa að taka þær til greina. „Og í öðru lagi eru kosningar framundan í borginni og ég get ekki ímyndað mér annað en þetta verði eitt af stóru málunum bæði í prófkjörum og kosningunum sjálfum. Þetta er því líkt stór mál fyrir borgina sjálfa. Þetta skiptir meira máli fyrir Reykvíkinga held ég en margir þeirra gera sér grein fyrir. Alla vega meira en mér finnst borgarstjórnin gera sér grein fyrir,“ segir Friðrik. Ef ekki verði horfið frá þessum áformum fyrir kosningar eins og menn hljóti að vona, þá verði þetta eitt af stóru kosningmálunum í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Allir sem hafi vit á þessum málum segi að innanlandsflug verði stórkostlega skert með aðeins einni flugbraut sem og öryggi vallarins sem sjúkravallar einnig. Engar líkur séu á að byggður verði nýr innanlandsflugvöllur. Friðrik segir flugvöllinn hins vegar snúast um meira en innanlandsflugið eins mikilvægt og það sé. „Við megum ekki gleyma því að þetta snýst um allt annað. Þetta snýst um þá þjónustu, bæði sem landsbyggðarfólk þarf að sækja til Reykjavíkur og Reykvíkingar eru að sækja út á land. Og í stórum stíl er þetta samgöngumiðstöð landsins alls og þetta er ekki einkamál einhverra nokkurra aðila sem telja sig vilja byggja endilega á þessum tiltekna stað,“ segir Friðrik Pálsson.
Mest lesið Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Fleiri fréttir VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Sjá meira