Fótbolti

Yfir fimmtán þúsund skráðir á "Takk fyrir okkur Eiður Smári“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eiður Smári í Króatíu í gær.
Eiður Smári í Króatíu í gær. mynd/vilhelm
Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen tjáði sig í íslenskum fjölmiðlum í gær að hann hefði líklega leikið sinn síðasta landsleik en íslenska landsliðið tapaði fyrir því króatíska, 2-0, í Zagreb í síðari leik liðanna í umspilinu um sæti á HM.

Nú hefur verið settur á laggirnar hópur inn á samskiptamiðlinum Facebook sem ber nafnið „Takk fyrir okkur Eiður Smári“ en yfir 15.000 manns hafa nú þegar sett nafn sitt við umræddan hóp.

Ísland verður því ekki á heimsmeistaramótinu í Brasilíu næsta sumar en stóð liðið sig einstaklega vel í undankeppninni. Aldrei hefur landslið komist eins langt í undankeppni HM í íslenskri knattspyrnusögu og virðist þjóðin stolt af liðinu.

Eiður Smári er markahæsti landsliðsmaður Íslands í sögunni og á að baki magnaðan feril með íslenska landsliðinu en hann lék sinn fyrsta leik fyrir land og þjóð árið 1996.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×