Fótbolti

"Á frábæra liðsfélaga“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Ólafur Ingi Skúlason missir af síðari leik Íslands og Króatíu í umspilinu fyrir HM 2014 eftir að hafa fengið rautt spjald í fyrri leik liðanna í gær.

Ólafur Ingi fékk beint rautt spjald fyrir að brjóta á Ivan Perisic sem var sloppinn í gegn. Liðsfélagar hans hrósuðu honum fyrir ákvörðunina og sögðu hana rétta.

Hann skrifaði neðangreind skilaboð á Twitter-síðu sína í gær og þakkaði bæði áhorfendum og liðsfélögum sínum fyrir stuðninginn, eins og sjá má neðst í fréttinni.

Ólafur Ingi spilaði sem hægri bakvörður í gær í stað Birkis Más Sævarssonar sem var í leikbanni. Birkir Már hefur nú tekið út sína refsingu og getur spilað með Íslandi gegn Króatíu ytra á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×