Fótbolti

Einn fremsti dómari heims dæmir í Króatíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Hollendingurinn Björn Kuipers, sem dæmdi úrslitaleik Brasilíu og Spánar í Álfukeppninni í sumar, dæmir leik Króatíu og Íslands í Zagreb á þriðjudaginn.

Kuipers dæmdi einnig úrslitaleik Chelsea og Benfica í Evrópudeild UEFA í vor en þessi fertugi viðskiptafræðingur hefur verið í efsta styrkleikaflokki dómara í Evrópu síðan 2009.

Hann var einnig einn dómaranna á EM 2012 í Póllandi og Úkraínu og tók til að mynda þá ákvörðun að stöðva leik Frakklands og Úkraínu í keppninni vegna óveðurs.

Leikurinn fer fram á Maksimir-vellinum í Zagreb og hefst klukkan 19.15. Fyrri viðureignin fór fram á Laugardalsvelli í gær og lauk með markalausu jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×