Fótbolti

Grikkir í góðum gír

Mynd/AP
Grikkland vann 3-1 sigur á Rúmeníu í fyrri umspilsleik þjóðanna um laust sæti á HM í Brasilíu og eru því í ágætum málum fyrir seinni leikinn í Rúmeníu. Konstantinos Mitroglou, framherji Olympiacos, skoraði tvö mörk fyrir Grikki í kvöld.

Grikkir komust í 1-0 strax á 14. mínútu leiksins en Rúmenar skoruðu mikilvægt útivallarmark og jöfnuðu metin aðeins fimm mínútum síðar.

Tveimur mínútum síðar kom Dimitris Salpingidis Grikkjum aftur yfir og Konstantinos Mitroglou innsiglaði síðan sigurinn með sínu öðru marki á 66. mínútu.

Seinni leikurinn fer fram í Rúmeníu og þótt að Grikkir séu í fínum málum þá mun 2-0 sigur koma rúmenska landsliðinu á HM. Það er því ennþá spenna í einvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×