Fótbolti

Velgengni landsliðsins hruninu að þakka

Kristján Hjálmarsson skrifar
Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum með Hereveen í Hollandi.
Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum með Hereveen í Hollandi. Nordicphotos/Getty
Ástæðan fyrir velgengni íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu er efnahagshrunið sem varð hér á landi. Íslensk knattspyrnulið þurftu þá að losa sig við dýra erlenda leikmenn og nota uppalda leikmenn í staðinn. Þannig fengu margir ungir knattspyrnumenn eldskírn sína á vellinum. Þetta segir í grein í The Wall Street Journal.

Í greininni, sem blaðamaðurinn Joshua Robinson skrifar, segir að Ísland sé nú bara tveimur leikjum frá því að tryggja sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Árangurinn sé hálfgerð Öskubuskusaga. Blaðamaðurinn segir að framlag Íslands til knattspyrnunnar hafi ekki verið mikið hingað til. Landið hafi verið þekkt fyrir örfáa leikmenn sem hafi spilað í ensku úrvalsdeildinni sem og undarleg „fögn“. Þar vísar blaðamaðurinn væntanlega til þess hvernig Stjörnumenn fögnuðu mörkum sínum.

Í greininni er rakið að 215 erlendir leikmenn hafi spilað hér á landi árið 2008 en aðeins 65 árið 2009. Alfreð Finnbogason er tekinn sem dæmi um leikmann sem fékk að njóta sín eftir hrun. Hann hafi fyrst þurft að verma varamannabekkinn en eftir að hann fékk loks tækifæri í byrjunarliðinu skoraði hann 13 mörk í 18 leikjum. Leiðin hafi legið beint í atvinnumennskuna.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×