Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Ísland – Króatía 0-0 | Hetjuleg barátta strákanna okkar Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Laugardalsvelli skrifar 15. nóvember 2013 09:45 Myndir/Daníel og Vilhelm
Tíu Íslendingar náðu markalausu jafntefli gegn Króatíu á Laugardalsvellinum í kvöld í fyrri umspilsleik Íslands og Króatíu um laust sæti á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu 2014. Ísland var einum leikmanni færra í 40 mínútur. Leikurinn hófst með látum. Það tók Króatíu aðeins mínútu að komast í fyrsta færið en Ari Freyr Skúlason bjargaði á línu. Ísland óð beint í sókn og Alfreð Finnbogason komst í færi sem nauðvörn Króata bjargaði í horn. Króatía var mun meira með boltann framan af fyrri hálfleik án þess að skapa sér færi. Liðið reyndi að sækja bak við bakverði Íslands og senda fyrir. Það var ekki fyrr en eftir 25 mínútna leik að Ísland náði að halda boltanum innan liðsins. Mikið jafnræði var með liðunum út hálfleikinn og lítið um færi. Það vantaði upp á gæðin í sendingum í sóknarleik beggja liða og því gerðist lítið upp við markið. Rétt fyrir hálfleik varð Ísland fyrir miklu áfalli. Kolbeinn Sigþórsson féll niður og virtist meiðast á hægri ökkla og þurfti að fara af leikvelli. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í hans stað í upphafi seinni hálfleiks. Annað áfall leit dagsins ljós strax á fimmtu mínútu seinni hálfleiks. Ólafur Ingi Skúlason var rekinn af leikvelli fyrir að brjóta á Ivan Perisic sem var við það að sleppa í gegn. Strangur dómur því Perisic fór niður að því er virtist hjálparlaust. Í kjölfarið óð Króatía í færum en Hannes Þór Halldórsson varði tvívegis frábærlega á þriggja mínútna kafla skömmu eftir brottreksturinn. Manni færi átti Ísland ekki margar sóknir en eftir að hafa staðið af sér stór sókn Króata eftir rauða spjaldið náði Ísland að halda Króatíu í skefjum og urðu gestirnir að sætta sig skot af löngu færi sem Hannes lenti ekki í teljandi erfiðleikum með. Eftir því sem leið á leikinn og íslensku strákarnir tóku að þreytast jókst pressa Króatíu. Ísland barðist hetjulega fyrir jafnteflinu og ljóst að liðið á enn alla möguleika á að tryggja sér sæti á HM í Brasilíu. Lars: "Á ekki orð yfir frammistöðu leikmannanna“„Leikmennirnir spiluðu frábærlega. Þið getið valið lýsingarorðin. Ég á þau ekki til að lýsa frammistöðu þeirra,“ sagði Lars Lagerbäck að leik loknum. Þjálfarinn hvatti blaðamenn til að beina spurningum til Heimis Hallgrímssonar því tilfinningar sínar væru svo blendnar. Þær sneru ekki síst að dómara leiksins, Alberto Undiano, sem átti að hans mati ekki sinn besta dag. „Dómarinn átti ekki sinn besta leik og það hjálpaði Króötum. Við vorum óheppnir með dómgæsluna,“ sagði sá sænski. Lagerbäck sagðist ekki geta lagt mat á hvort rauða spjaldið á Ólaf Inga Skúlason hefði verið réttur dómur. „Ég þyrfti að sjá það í sjónvarpi. Hins vegar voru margar skrýtnar ákvarðarnir, 50/50 dómar sem féllu ekki með okkur.“ Lagerbäck sagðist vera ánægður með úrslitin í ljósi stöðunnar sem upp var komin. „Ég sagði fyrir leikinn að ef við héldum hreinu í þessum leik þá ættum við góða möguleika. Það er enn raunhæft að sigra þá,“ sagði Lagerbäck. Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari liðsins, bætti við að íslenska liðið hefði aldrei spilað tvo leiki í röð undir þeirra stjórn án þess að skora. Svíinn sagðist reikna með að Kolbeinn Sigþórsson, sem fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks, færi í myndatöku á morgun. Hann hefði snerið á sér ökklann. Ekki yrði kallaður nýr leikmaður inn í hópinn í stað framherjans enda myndi Birkir Már Sævarsson snúa aftur úr leikbanni. Lagerbäck sagði frammistöðu liðsins í síðari hálfleik, manni færri, hafa verið í heimsklassa. Ef liðið spilaði vel í síðari leiknum, líkt og til dæmis í sigurleiknum gegn Albaníu í september, þá væri góður möguleik Þjálfari Króata: Sýndum að það eru meiri gæði í okkar liði„Það fór meiri orka í þennan leik hjá íslensku leikmönnunum en þeir hefðu kosið. Það mun hjálpa okkur í seinni leiknum,“ sagði Niko Kovac, þjálfari Króata, að leik loknum. Kovac stóð á hliðarlínunni og kallaði skilaboð til sinna manna nánast frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. „Þetta eru auðvitað ekki úrslitin sem við vildum en þau eru ekki slæm heldur. Við vitum að við þurfum að skora í einvíginu til að komast áfram,“ sagði Kovac. Hann er bjartsýnn á möguleika sinna manna. „Við sýndum að það eru meiri gæði í okkar liði. Varamenn okkar, sem komu inn á, sýndu að breiddin er meiri. Við getum þó spilað betur en í dag,“ sagið Kovac sem fannst sýnir menn einblína of mikið á lengri sendingar í stað styttri. „Við áttum von á því að skora eftir að við urðum manni fleiri en markvörður Íslands varði vel úr nokkrum færum. Stundum er erfiðara að skora með ellefu leikmenn inni á vellinum en tíu,“ sagði Kovac. Hann endurtók að úrslitin væru ekki slæm. „Nú höldum við heim þar sem við eigum von á góðum stuðningi og góðum úrslitum. Þá förum við á HM í Brasilíu.“ Kovac hrósaði vallarstarfsmönnum á Laugardalsvelli fyrir sitt framtak. Hann hefði reiknað með mun erfiðari aðstæðum en var afar sáttur við skilyrðin í kvöld. „Hamingjuóskir til allra sem lögðu hönd á plóg til að gera völlinn kláran.“ Eiður Smári: Sveppi er fáviti„Menn verða að vera viðbúnir því sem getur gerst í fótboltaleik og þetta er því miður hluti af þessu,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen um rauða spjaldið sem Ólafur Ingi Skúlason fékk í umspilsleiknum gegn Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld. „Við náðum að aðlaga okkur nokkuð vel fannst mér, sérstaklega strax eftir rauða spjaldið því það þurfti strax að gera breytingu. Í heildina litið vorum við mjög skipulagðir og gáfum þeim lítið svæði. Þeir náðu ekki að skapa sér mikið. Það er gríðarlega mikilvægt að halda hreinu.“ „Það hefði verið nógu erfitt að halda hreinu ellefu á móti ellefu, hvað þá tíu á móti ellefu. Því eru þetta frábær úrslit og ef við náum að spila ellefu á móti ellefu úti í Króatíu þá er ég fullviss um að við getum strítt þeim.“ „Ég vil sem minnst tala um dómarann. Ég veit ekki hvort þetta hafi verið rétt rautt spjald en það má segja að öll vafaatriði hafi fallið með þeim. Við þurftum að hafa fyrir því að fá dæmdar aukaspyrnur, það fór mest í taugarnar á okkur,“ sagði Eiður Smári sem hugsar vini sínum Sverri Þór Sverrissyni (Sveppa) þegjandi þörfina fyrir að hafa lekið því í hádeginu að Eiður Smári byrjaði leikinn á bekknum. „Sveppi er bara fáviti, það er ekkert flóknara en það.“ Rúrik: Stuðningurinn frábær„Miðað við aðstæður tel ég að markalaust jafntefli séu fín úrslit,“ sagði Rúrik Gíslason sem kom inn á sem varamaður í leiknum gegn Króatíu í kvöld. Rúrik átti góða innkomu en Ísland hafði þá misst Ólaf Inga Skúlason af velli með rautt spjald. „Ég kom inn á með þau skilaboð að hjálpa Birki [Bjarnasyni] í varnarhlutverkinu og tvöfalda á kantinn. Mér fannst það takast bara nokkuð vel,“ sagði Rúrik sem fagnaði því að fá tækifærið í kvöld. „Ég hef verið á bekknum í nokkurn tíma og var því orðinn ansi þyrstur í að fá að spila,“ sagði hann og brosti. Hann á von á erfiðari leik í Króatíu. „Heimavöllurinn skiptir miklu máli en við eigum samt okkar möguleika. Við verðum að grípa þá. Við erum bjartsýnir fyrir næsta leik.“ Rúrik hrósaði þeim tæplega tíu þúsund áhorfendum sem voru á vellinum í kvöld. „Þetta er orðið mjög flott og okkur er sýnd virðing með þessari góðu mætingu. Hér voru allir á milljón allan leikinn. Þetta var frábærlega skemmtilegt og það var gaman að taka þátt í þessu.“ Alfreð: Erum í góðri stöðu„Markmiðið fyrir leikinn var að halda núllinu og því sem líður á seinni leikinn þá erum við alltaf í betri og betri stöðu,“ sagði Alfreð Finnbogason sem byrjaði í fremstu víglínu hjá Íslandi í kvöld í umspilsleiknum gegn Króatíu. „Þetta var frábær frammistaða hjá liðinu. Þetta var gaman að sjá,“ sagði Alfreð sem var ekki ánægður með dómara leiksins frekar en aðrir Íslendingar í kvöld. „Ég held að það sé best að við segjum sem minnst. Ég held að allir með góða sjón hafi séð hvað var í gangi. Þetta á ekki að sjást. „Við vörðumst gríðarlega vel og þeir áttu eitt færi í seinni hálfleik. Varnarvinnan sem við settum í leikinn bitnaði á sóknarleiknum. „Við sögðum fyrir leikinn að 0-0 yrðu góð úrslit. Við erum vel lifandi í þessu einvígi.“ „Við erum í góðri stöðu,“ sagði Alfreð. Gylfi: Vel gert hjá Ólafi IngaGylfi Þór Sigurðsson var bjartsýnn að loknum fyrri leiknum gegn Króatíu í umspili fyrir HM 2014 í Brasilíu. Leiknum lauk með markalausu jafntefli þrátt fyrir að Íslandi hafi misst mann af velli með rautt spjald snemma í síðari hálfleik. „Það var mjög mikilvægt að hafa náð að halda hreinu, sérstaklega miðað við að hafa misst Ólaf út af með rautt spjald. Nú verður útivallamarkið mjög dýrmætt,“ sagði Gylfi Þór en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. Hann hrósaði varnarleiknum, sérstaklega í seinni hálfleik, og er bjartsýnn fyrir leikinn í Zagreb á þriðjudaginn. „Sem betur fer erum við með nóg af góðum leikmönnum sem geta komið inn. Það var ekki leiðinlegt að fá Eið Smára inn af bekknum í kvöld og allir í hópnum fyrir utan byrjunarliðið eru klárir í að koma inn.“ Hann segir að það hafi verið erfitt að verjast í seinni hálfleik, enda yfirleitt með alla tíu mennina fyrir aftan boltann. „Síðan þegar við unnum boltann var enginn frammi til að spila á. En það jákvæða er að við náðum að halda hreinu þrátt fyrir að vera manni færri.“ Gylfi segir að rauða spjaldið sem Ólafur Ingi fékk hafi verið réttur dómur. „Hann var kominn í gegn og það sýndi reynslu hjá Óla að toga hann niður.“ Ari Freyr: Þetta var einn besti varnarleikur okkar í keppninni„Við börðumst vel og sýndum kjark þó dómarinn hafi verið skelfilegur. Við héldum áfram og hefðum getað stolið sigri en verðum að sætta okkur við þetta,“ sagði Ari Freyr Skúlason sem átti mjög góðan leik fyrir Ísland í kvöld í umspilinu gegn Króatíu fyrir laust sæti á HM í Brasilíu. „Síðustu fimm mínúturnar voru erfiðar þegar þeir senda fjóra framherja fram sem hlaupa út um allt. Mér fannst við halda haus þó það fari auðvitað í taugarnar á okkur þegar dómarinn er í svona skapi. „Þetta var einn besti varnarleikur okkar í keppninni.“ sagði Ari Freyr Skúlason. Kári: Ólafur Ingi hélt okkur inni í einvíginu„Eftir á að hyggja er frábært að ná 0-0. Við erum einum færri hálfan leikinn,“ sagði Kári Árnason sem átti frábæran dag í vörn Íslands í umspilsleiknum gegn Króatíu í kvöld. „Þeir sköpuðu ekki mörg færi og mér fannst við aldrei vera í virkilegum vandræðum með þá. „Mér fannst hann verða gera þetta. Ef hann hefði sleppt honum í gegn og þeir skorað hefði verið að brattann að sækja. Í rauninni heldur hann okkur inni í þessu,“ sagði Kári Árnason um rauða spjaldið sem Ólafur Ingi Skúlason fékk í leiknum.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Körfubolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Brentford hafnaði tilboði Manchester United Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Sjá meira