Fótbolti

Tilfinningarnar bera mann oft ofurliði | Gummi Ben í beinni á Bylgjunni í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta leggst bara mjög vel í mig og ég er eins og 90% þjóðarinnar að deyja úr spennu,“ segir Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður 365, sem mun lýsa leik Íslands og Króatíu í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu beint á Bylgjunni á Laugardalsvellinum í kvöld.

Guðmundur hefur í gegnum árin lýst spennandi leikjum, bæði í ensku úrvalsdeildinni, þeirri spænsku og í Meistaradeild Evrópu en tilfinningarnar bera hann oft ofurliði þegar um íslenska landsliðið ræðir.

„Það er tvennt ólíkt að lýsa leik hjá stórliðum í Evrópu og íslenska landsliðinu. Maður ræður oft á tíðum ekki við tilfinningarnar og það er bara í góðu lagi að mínu mati. Ég má vera eins hlutdrægur og ég vill í kvöld.“

Guðmundur telur að leikurinn í kvöld fari jafnt.

„Ég hef verið að flakka á milli þess að spá leiknum 0-0 eða 1-1. Gylfi Þór Sigurðsson mun setja boltann í netið af 18 metra færi en Mario Mandzukic mun síðan skalla boltann í netið eftir sendingu frá Darijo Srna.“

Mun Mandzukic þá fagna fyrir framan andlitið á Ragnari Sigurðssyni, leikmanni íslenska landsiðsins?

„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég ekki viss um að Mandzukic viti hver Ragnar er,“ sagði Guðmundur léttur að lokum.

Ragnar Sigurðsson lét þau orð falla í viðtali við Stöð 2 í vikunni að hann vissi í raun ekki hver Mandzukic, leikmaður Bayern Munchen væri.

Guðmundur Benediktsson verður mættur í loftið á Bylgjunni rétt fyrir leik en hér að ofan má heyra hvernig viðbrögðin voru hjá kappanum er Kolbeinn Sigþórsson skoraði mark Íslands gegn Norðmönnum fyrir mánuði síðan. Guðmundur hreinlega trylltist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×