Fótbolti

Dúkurinn farinn | Laugardalsvöllurinn iðagrænn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Laugardalsvöllurinn í dag.
Laugardalsvöllurinn í dag. Mynd/KSÍ
Dúkurinn frægi hefur verið fjarlægður af Laugardalsvellinum og virkar grasið í fínu standi.

Sérstakur dúkur var lagður á völlinn fyrir einni viku til að vernda grasið fyrir veðri og frosti.

Ísland mætir Króatíu í fyrri leik þjóðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður í beinni lýsingu á Bylgjunni og hér á Vísi.

Hér að neðan má sjá myndband af vellinum sem var birt á fésbókarsíðu Knattspyrnusambands Íslands í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×