Fótbolti

Mergjuð stemning hjá Íslendingum í Ósló

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
"Það er pakkað hér og mikill hiti í húsinu, fólk er að þamba mikinn bjór,“ sagði viðmælandi fréttastofu.
"Það er pakkað hér og mikill hiti í húsinu, fólk er að þamba mikinn bjór,“ sagði viðmælandi fréttastofu.
Tugir Íslendinga eru saman komnir á pöbb í Ósló til þess að fylgjast með leik Íslands og Króatíu sem fram fer á Laugardalsvelli í kvöld. Þar er að sögn viðmælanda fréttastofu sem er á staðnum er „stemningin á staðnum merguð“.

Hópur Íslendinga í Ósló ákvað að hittast á írska pöbbnum O´Reilly´s nálægt miðborginni. Íslendingarnir eru ánægðir með frammistöðu íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik og biðu þeir spenntir eftir því í leikhléi að Eiður Smári Guðjohnsen kæmi inn á völlinn. Eiður Smári var sendur inn á völlinn í upphafi fyrri hálfleiks og vænta má að fólkið hafi glaðst yfir því.

„Það er pakkað hér og mikill hiti í húsinu, fólk er að þamba mikinn bjór,“ sagði viðmælandi fréttastofu.

„Íslendingar geta verið stoltir,“ sagði norski þulurinn í leikslok. Fólkið á barnum hrópaði „Ísland, Ísland, Ísland,“ og klappaði mikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×