Lífið

Kossaflens á körfuboltaleik

Tískugúrúinn Mary-Kate Olsen og kærasti hennar, Olivier Sarkozy, hálfbróðir Nicolas Sarkozy fyrrverandi forseta Frakklands, voru ansi innileg á körfuboltaleik í Madison Square Garden í New York á sunnudaginn.

Mary-Kate og Olivier voru lítið að spá í því hvort New York Knicks væru að vinna eða tapa fyrir Miami Heat heldur einbeittu sér að því að kjassast og kyssast fyrir framan alla.

Skemmtileg pósa.
Sextán ára aldursmunur er á parinu en Olivier á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni Charlotte Bernand. Þau skildu í fyrra eftir þrettán mánaða hjónaband. Mary-Kate og hann eru búin að deita í níu mánuði og sögurnar segja að þau séu trúlofuð þó þau hafi ekki viljað staðfesta það.

Rudd-feðgarnir.
Turtildúfurnar voru ekki einu þekktu andlitinu á leiknum. Paul Rudd bauð syni sínum Jack Rudd á völlinn og gamla brýnið Phil Collins mætti með eiginkonu sinni.

Phil Collins og spúsan.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.