Mávurinn skilinn eftir heima Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 8. mars 2013 06:00 Hafði betur Hera er hér með keppinauti sínum úr Viña Del Mar-söngvakeppninni, Francisco Leon. Hún hafði betur en hann í keppninni og kom heim með Mávastyttuna meðan hann fór heim tómhentur. mynd/Valgeir magnússon „
Ég hugsa nú að mávurinn góði verði bara eftir heima. Ég býst við svo miklu stuði þarna og hann er með svo beitta vængi að það gæti endað illa,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir. Eins og flestum er kunnugt stóð Hera Björk uppi sem sigurvegari í Viña Del Mar-söngvakeppninni í síðustu viku og fékk í verðlaun forláta mávastyttu og rúmar fjórar milljónir íslenskra króna. Hera Björk er nú komin aftur heim á klakann og vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að slá upp heimkomupartíi fyrir hana á Spot í Kópavogi í kvöld. Hera mun sjálf sjá um að skemmta gestum en henni til aðstoðar verður Haffi Haff. Að tónleikum loknum þeyta umboðsmenn hennar og vinir, Valli Sport og Örlygur Smári, svo skífum fram eftir kvöldi. „Ég ætla að taka mín bestu lög og að sjálfsögðu verður Because You Can þar á lista,“ segir hún. „Það er aldrei að vita nema ég splæsi í eitt eða tvö erindi á spænsku,“ bætir hún við, en Viña Del Mar-keppnin er með stærri keppnum hins spænskumælandi heims. Hera Björk segist ekki vera búin að ákveða í hverju hún ætli að vera á tónleikunum, en rauði kjóllinn sem hún klæddist á sviðinu í Síle verði þó ekki fyrir valinu. „Hann er kominn í hreinsun greyið, enda alveg búinn að vinna fyrir því að fá smá hvíld,“ segir hún og hlær.- trs
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Lífið samstarf Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira