Lífið

Dóttir Jacksons sýnir klappstýrutakta

Paris Jackson, fjórtán ára dóttir Michaels Jacksons heitins, er gengin til liðs við klappstýruliðið í skólanum sínum, Buckley.

Paris sýndi listir sínar á æfingu á þriðjudaginn og hefur greinilega erft eitthvað af danshæfileikum föður síns.

Paris klippti hárið stutt fyrir stuttu.
Paris gerði hinar ýmsu kúnstir til að styðja við körfuboltalið drengja við skólann og viti menn – strákarnir unnu leikinn!

Hress.
Með grímu fyrir pabba.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.