Spyr hvort ríkisstjórnin hafi frestað nóvembermánuði Höskuldur Kári Schram skrifar 15. október 2013 14:20 Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi forystumenn ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag fyrir óljósar yfirlýsingar varðandi skuldamál heimilanna. Helgi Hjörvar vísaði í þessu samhenig í viðtal sem Bloomberg fréttastofan tók við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra. Þar segir Bjarni ólíklegt að endanlegar ákvarðanir um skuldaniðurfellingu verði teknar á þessu ári. Sérfræðingahópur forsætisráðherra á að skila tillögum um lausnir varðandi skuldavanda heimilanna í lok nóvembermánaðar. Helgi spurði hvort skilja mætti fjármálaráðherra svo að ekki væri von á neinum tillögum á þessu ári. Hann sagði þúsundir heimila bíða eftir boðuðum aðgerðum og að ríkisstjórnin skuldi þessum heimilum skýr svör. „Hefur ríkisstjórnin frestað nóvembermánuði? Það er óhjákvæmilegt að spurt sé því að tugir þúsunda Íslendinga bíða þess í ofvæni að í nóvembermánuði komi fram tillögur til úrlausnar á skuldavandanum sem Framsóknarflokkurinn hefur boðað. En þá ber svo við að formaður Sjálfstæðisflokksins lýsir því yfir á Bloomberg að ólíklegt sé að tillögur komi fram á þessu ári og að hann vonist til þess að nefndirnar sem áttu að klára í lok nóvember klári fyrir áramót. Þá spyr maður hvort ríkisstjórnin hafi gert ráðstafanir til þess að flytja áramótin fram í nóvembermánuð eða hvernig þetta mál sé eiginlega í laginu?“sagði Helgi. Hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir óljósar yfirlýsingar. „Það er ábyrgðarhluti að tala um dagsetningar á tvist og bast eins og formaður Framsóknarflokksins annars vegar og formaður Sjálfstæðisflokksins hins vegar eru farnir að gera í málinu. Mér finnst að stjórnarflokkarnir og forystmenn þeirra skuldi skuldugum heimilum hér í landinu það að tala alveg skýrt um það hvort það sé að vænta tilllagna í nóvember eins og sagt var í sumar eða hvort þeirra sé ekki að vænta fyrr en um áramót eða hvort þeirra sé ekki að vænta fyrr en á næsta ári,“ sagði Helgi.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Fleiri fréttir Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Sjá meira