Erlent

Yfir 300 manns hafa fallið í loftárásum í Sýrlandi síðustu daga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skelfilegt ástand í Sýrlandi
Skelfilegt ástand í Sýrlandi nordicphotos/epa
Loftárásir sýrlenskra yfirvalda gegn uppreisnamönnum í borginni Aleppo hafa verið nú sleitulaust í átta daga í röð en alls eiga yfir 300 manns að hafa fallið í árásunum.

Talið er að þriðjungur þeirra séu börn. Í nótt féll sprengja í bæ í nágrenni Aleppo og fórust 56  í árásinni.

Mannréttindsamtökin Human Rights saka stjórnvöld um að gera ekki greinamun á óbreytum borgurum og uppreisnarmönnum í árásum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×