Erlent

Hótaði sprengjuárás til að sleppa við lokapróf

Eldo Kim var nemandi við Harvard. Hann er það örugglega ekki lengur.
Eldo Kim var nemandi við Harvard. Hann er það örugglega ekki lengur.
Eldo Kim, tvítugur nemandi í Harvard í Bandaríkjunum, hefur verið ákærður eftir að hann sendi skólastjórnendum sprengjuhótun á mánudag. Hann á yfir höfði sér 5 ára fangelsi.

Á mánudagsmorgun fengu skólastjórnendum nokkra tölvupósta frá óþekktu tölvupóstfangi þar sem kom fram að búið væri að koma nokkrum sprengjum fyrir í byggingum skólans. „2/4. komið með rétta ágiskun. verið fljót eða þær springa fljótt,“ stóð meðal annars í einum tölvupóstinum.

Skólinn var rýmdur, og skapaðist mikið öngþveiti þar sem nemendur voru að fara í lokapróf. Rannsókn sprengjusveitar FBI leiddi í ljós að sprengjuhótunin var gabb.

Í gærkvöld kom í ljós að Eldo Kim sendi tölvupóstana, en upp komst um hann þar sem hann sendi þá af þráðlausu neti í skólanum. Fulltrúar FBI yfirheyrðu hann á mánudagskvöld þar sem hann viðurkenndi að hafa sent tölvupóstana.

„Að hans sögn var hann að reyna að sleppa við lokapróf sem átti að vera á mánudagsmorgun,“ segir talsmaður lögreglunnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×