Fótbolti

Hodgson: Megum ekki fara á taugum

Hodgson með Wayne Rooney.
Hodgson með Wayne Rooney.
Enska landsliðið tapaði 0-1 gegn Þýskalandi í gær. Þetta var annað tap liðsins í röð á Wembley en slíkt hefur ekki gerst í 36 ár.

Varnarleikur liðsins þótti ekki sannfærandi og vilja margir sjá John Terry koma aftur í liðið en hann hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.

"Við höfum lagt það mál til hliðar. John hætti," sagði landsliðsþjálfarinn, Roy Hodgson.

"Við komumst á HM með Gary Cahill og Phil Jagielka. Svo stóð Chris Smalling sig vel núna. Það er mikilvægt að halda áfram á þessari braut og við megum ekki fara á taugum. Það er ekki alltaf hægt að líta til baka."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×