Fótbolti

Adidas á HM til ársins 2030

Það verður leikið með Adidas-boltum og sjálfboðaliðar munu klæðast Adidas-fatnaði á HM í fótbolta í það minnsta til ársins 2030. Adidas og FIFA hafa skrifað undir samning þess efnis.

Adidas hefur verið aðalstyrktaraðili HM síðan árið 1970 og fyrirtækinu fannst nauðsynlegt að halda samningnum við FIFA í baráttu sinni við Nike á fótboltavörumarkaðnum.

Þar er markaðshlutdeild fyrirtækjanna nánast jöfn en Nike er í mikilli sókn.

Síðasti samningur náði yfir HM 2010 og 2014 var metinn á 350 milljónir dollara. Ekki voru gefnar upp neinar upphæðir í nýja samningnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×