Fótbolti

Heimir tekur við af Lars Lagerbäck eftir næstu undankeppni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck.
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck. Mynd/Pjetur
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson verða báðir aðalþjálfarar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í næstu undankeppni en þetta kom fram á blaðamannafundi í KSÍ þar sem nýr samningur var kynntur.

Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímur verða saman með liðið fram yfir EM 2016. Eftir það tekur Heimir einn við liðinu í undankeppni HM í Rússlandi 2018.

Lars Lagerbäck hefur verið þjálfari íslenska liðsins í tvö ár og undir hans stjórn náði íslenska liðið sínum besta árangri frá upphafi og var hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppni HM í Brasilíu.

Næst á dagskrá er Evrópumótið í Frakklandi en 24 þjóðir komast þangað. Það verður dregið í riðla í undankeppninni í febrúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×