Fótbolti

Byrjað að blása heitu lofti á völlinn á nýjan leik

Það er nóg af heitu lofti undir dúknum núna.
Það er nóg af heitu lofti undir dúknum núna. mynd/facebook-síða ksí
Ábreiðan á Laugardalsvelli var felld niður í nótt út af veðrinu sem þá gekk yfir. Þar sem hún er vatnsheld náði hún að varna því að völlurinn yrði mjög blautur.

Vatnið myndi þar af leiðandi ekki frjósa á vellinum.

Þar sem mesta óveðrið er gengið yfir, í bili að minnsta kosti, þá er byrjað að blása heitu lofti aftur á grasið en það var byrjað á því í morgun.

Á meðfylgjandi mynd frá KSÍ má sjá að "pulsan" undir dúknum er farin á fullt og heldur vellinum heitum og góðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×