Fótboltabullum hugsanlega snúið við á Keflavíkurflugvelli Hjörtur Hjartarson skrifar 12. nóvember 2013 19:08 Víðir Reynisson, yfirmaður öryggismála hjá KSÍ.
Öryggisgæsla verður hert til muna fyrir landsleik Íslands og Króatíu á föstudaginn. Til greina kemur að stöðva óæskilega stuðningsmenn króatíska liðsins á Keflavíkurflugvelli og vísa þeim þaðan úr landi. Króatíska knattspyrnusambandið fékk eitt þúsund miða fyrir leikinn sem þeir selja svo áfram til stuðningsmanna sinna. Einungis þeir sem ekki hafa orðið uppvísir að ólátum á knattspyrnuvöllum geta keypt miða. Menn hafa því ekki mikla áhyggjur af þeim stuðningsmönnum, heldur þeim hópi sem kemur til landsins án miða. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og KSÍ eru í nánu sambandi við kollega sína í Króatíu. „Við höfum semsagt fengið frá þeim lista yfir stuðningsmenn króatíska landsliðsins sem hafa ekki heimild til að kaupa miða hjá þeim og þeir flokka sem hættulega áhorfendur. Við vitum því hverjir þeir eru og þeir munu láta okkur vita um einstaklinga sem eru að reyna að fara," segir Víðir Reynisson, yfirmaður öryggismála hjá KSÍ. Víðir segir að ekki sé vitað fyrir víst hvort einhverjir á þessum lista séu á leið til landsins. „En sagan sýnir okkur að alls staðar þar sem króatíska landsliðið hefur farið hefur einhver svona hópur fylgt þeim."Frá Laugardalsvelli í dag.Króatar fengu nýlega sektir frá evrópska knattspyrnusambandinu fyrir ólæti stuðningsmanna liðsins, bæði heima og úti. Vanalega eru um 100 manns í gæslu á landsleikjum Íslands en verða ríflega 150 á föstudaginn. Að auki mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoða gæslumenn. Ekki er víst að allra verstu fótboltabullurnar komist til Reykjavíkur. Til greina kemur að ferðalag þeirra fái snöggan endi segir Víðir. „Menn hafa auðvitað eftirlit með því og hafa heimild til að vísa hættulegum einstaklingum frá landi ef mat Ríkislögreglustjóra krefst þess."
Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu Enski boltinn Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira