Fótbolti

Snjórinn sendir landsliðið inn í Kórinn

mynd/vilhelm
Eins og höfuðborgarbúar hafa tekið eftir þá er byrjað að snjóa og aðstæður til knattspyrnuiðkunar utandyra ekki góðar. Þess vegna mun knattspyrnulandsliðið æfa innandyra í dag.

Æfing íslenska landsliðsins sem átti að fara fram á Kópavogsvelli hefur verið færð inn í Kórinn. Þar er hlýtt og notalegt. Mikilvægast af öllu er þó að þar er enginn snjór.

Engu að síður eru núna aðstæður sem hugsanlega verða á Laugardalsvelli á föstudag. Það færi þó væntanlega ekki vel með Kópavogsvöll að æfa á honum við þessar aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×